is
88
AÐVÖRUN
AÐVÖRUN
3.1.9 Sérstök notkun
Hafið samband við sölu- og þjónustudeild í
eftirfarandi tilvikum:
- ef vökvinn sem dæla þarf hefur þéttleika og seigju sem er meiri
en vatns (t.d. blanda vatns og glýkóls) þar sem setja þarf í
öflugri mótor.
- ef vökvinn sem dæla þarf er vatn sem hefur verið meðhöndlað
með kemískum efnum (mýkt, afjónað, fjarlægði málmar...).
- Ef setja þarf dæluna upp lárétt (
kafla 9)
og við hvers konar aðstæður aðrar en þær sem lýst hefur verið
sem varða eðli vökvans.
3.1.10 Röng notkun
ef dælan/rafknúni dælubúnaðurinn er notuð á rangan
hátt þá getur skapast hætta og við það er hætta á
slysum eða eignaskemmdum.
Nokkur dæmi um ranga notkun:
- dæling á vökva sem er ekki í samræmi við efnin sem
dælan er gerð úr
- dæling á hættulegum vökvum (eitruðum, sprengifimum,
ætandi)
- dæling á vökvum til drykkjar (víni, mjólk, ......)
- uppsetning dælunnar/rafknúna dælubúnaðarins á
hættulegum stöðum (sprengifimu umhverfi)
- uppsetning rafknúna dælubúnaðarins þar sem lofthiti er
mjög mikill og/eða slæm loftræsting
- uppsetning á rafknúna dælubúnaðinum utandyra þar
sem hann er ekki í skjóli fyrir rigningu eða frosti
Röng notkun dælunnar/rafknúna dælubúnaðarins veldur því að
ábyrgð fellur úr gildi.
3.2 Ábyrgð
Vísað er í sölusamninginn varðandi nánari upplýsingar.
4. Flutningur og geymsla
Upplýsingar fyrir flutningsaðila
4.1 Flutningur, geymsla og meðferð vörunnar í umbúðum
sínum
Dælunum/rafknúna dælubúnaðinum er pakkað í pappakassa
eða trékassa af mismunandi stærð og lögun. Athugið
umbúðirnar að utan varðandi greinileg ummerki um skemmdir.
Sumir pappakassar (með botn úr tré) eru
hannaðir fyrir flutning og meðhöndlun í
uppréttri stöðu. Aðrir pappakassar svo og trékassar eru ætlaðir
fyrir flutning í láréttri stöðu. Verjið vöruna gegn raka, hita og
áföllum (árekstrum, falli, ...). Setjið ekki þunga hluti ofan á
pappakassana.
Sýnið varúð þegar vörunni er lyft, notið hentugan
lyftibúnað. Fylgið öllum reglum um slysavarnir.
Varan í umbúðum þarf að vera í geymslu þar sem er eftirfarandi
hitabil: -5°C til +40°C.
4.2 Varan tekin úr umbúðum
Upplýsingar fyrir uppsetningarmenn
Notið viðeigandi áhöld. Fylgið öllum reglum um
slysavarnir. Sýnið varúð þegar vörunni er lyft, notið
hentugan lyftibúnað.
Þegar dælan/rafknúni dælubúnaðurinn er tekin úr umbúðunum
þá skal athuga ytra byrði umbúðanna varðandi greinileg
ummerki um skemmdir sem kynnu að hafa orðið í flutningi og
geymslu.
4.2.1 Pappakassi (fyrir flutning í lóðréttri stöðu)
Fjarlægið
heftin
og
opnið
kassann.
Dælan/rafknúni
dælubúnaðurinn er fest við trébrettið með skrúfum.
4.2.2 Pappakassi (fyrir flutning í láréttri stöðu)
Fjarlægið
heftin
og
opnið
kassann.
Dælan/rafknúni
dælubúnaðurinn er fest við eina hliðina með skrúfum eða
bendlum.
4.2.3 Trékassi (fyrir flutning í láréttri stöðu)
Opnið lokið, gætið að nöglum og bendlum. Dælan/rafknúni
dælubúnaðurinn er fest við eina hliðina með skrúfum eða
gjörðum.
4.2.4 Förgun umbúða
Ef ekki er hægt að nota umbúðirnar í öðrum tilgangi þá fargið
þeim á förgunarstöð samkvæmt gildandi reglugerðum.
4.3 Meðhöndlun vörunnar
Sýnið varúð þegar vörunni er lyft, notið hentugan
lyftibúnað. Fylgið öllum reglum um slysavarnir. Gætið að
hver er heildarþyngd sem gefin er upp utan á
umbúðunum til að velja réttan lyftibúnað.
Hlutinn þarf að festa tryggilega fyrir lyftingu og meðhöndlun
Mynd F.
Flutningur á rafknúna dælubúnaðinum:
•Notið
bendla
um
mótorinn
ef
rafknúni
dælubúnaðurinn er með mótor með eftirfarandi afl:
0,25÷4kW.
•Notið kaðla sem tengdir eru í 2 kraga (eða 2 lykkjur
ef þær eru til staðar) sem eru í grennd við
samsetningarstað dælu og mótors með eftirfarandi afl:
5,5÷55KW
•Notið lykkjur sem skrúfaðar eru á mótorinn eingöngu
fyrir flutning á mótornum einum og sér en ekki fyrir
flutning á öllum rafknúna dælubúnaðinum.
5. Uppsetning
Upplýsingar fyrir uppsetningarmenn
Eingöngu hæfir og reyndir starfsmenn skulu sjá um
uppsetningu. Notið viðeigandi áhöld og varnir. Fylgið
öllum reglum um slysavarnir.
Lesið vandlega uppsetningarmörk sem tilgreind eru í kafla 3.1.6
Ávallt skal hafa í huga svæðisbundnar og innlendar reglugerðir,
lög og lagafyrirmæli vaðandi val á uppsetningarstað og
tengingar á vatni og rafmagni.
5.1.1 Staðsetning
Gangið úr skugga um að eingar hindranir eða fyrirstaða komi í
veg fyrir eðlilegt flæði kælandi lofts til viftu mótorsins. Tryggið að
nægilegt rými sé umhverfis dæluna vegna viðhalds. Þar sem því
verður við komið skal staðsetja dæluna rétt fyrir ofan gólfflötinn.
Farið nákvæmlega eftir skýringamyndum í mynd J.
5.1.2 Festingar
Festið dæluna/rafknúna dælubúnaðinn tryggilega með boltum
við steinsteypta undirstöðu eða sams konar undirstöðu úr málmi
(hillu eða pall). Ef dælan/rafknúni dælubúnaðurinn er stór um
sig og þarf að vera sett upp í grennd við mannabústaði þá þarf
að koma fyrir hentugum búnaði til að eyða titringi til að koma í
veg fyrir að titringur berist frá dælunni í steinsteyptu
undirstöðuna. Stærðir á sökkli dælunnar og festigöt eru á
myndum í mynd L.
5.1.3 Val á sog- og frálagsrörum
Notið rör sem henta fyrir hámarksafköst dælunnar.
Ef um er að ræða opna rás þá gangið úr skugga um að þvermál
sogrörsins henti fyrir aðstæður við uppsetningu og að það sé
ekki minna en þvermál sogstútsins. Sjá myndir í kafla 3.1.3 og
teikningar í mynd K.
Mynd K, SKÝRINGAR
1
Stuðningur fyrir rörið svo það hvíli ekki á tengikraga
dælunnar
2
Opnunar- lokunarloki til að komast hjá því að tæma kerfið
vegna viðhalds, viðgerða eða útskipta á dælunni
3
Sveigjanlegt rör eða röratengi til að komast hjá að titringur
berist yfir í rörin
4
Einstefnuloki til að koma í veg fyrir að vökvi renni til baka
þegar dælan er ekki í gangi ef um er að ræða lágmarks
sogþrýsting eða lokaða hringrás
Содержание Lowara e-SV Series
Страница 221: ...it en fr de es pt nl da no sv fi is et lv lt pl cs sk hu ro bg sl hr sr el tr ru uk ar 221 Figure V ...
Страница 223: ...it en fr de es pt nl da no sv fi is et lv lt pl cs sk hu ro bg sl hr sr el tr ru uk ar 223 Figure Y 1 3 5 10 15 22 SV ...
Страница 224: ...it en fr de es pt nl da no sv fi is et lv lt pl cs sk hu ro bg sl hr sr el tr ru uk ar 224 Figure W 33 46 66 92SV ...
Страница 225: ...it en fr de es pt nl da no sv fi is et lv lt pl cs sk hu ro bg sl hr sr el tr ru uk ar 225 Figure Z 125SV ...