32
i
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Lesið þessar leiðbeiningar samhliða öðrum viðeigandi
notkunarleiðbeiningum og sérleiðbeiningum þar sem finna má upplýsingar
um samþykktar samsetningar, varahluti og aukabúnað.
KERFISLÝSING
3M™ Speedglas™ G5-01 öflugi logsuðuhjálmurinn er eingöngu hannaður
til notkunar með Speedglas G5-01-logsuðusíum og verndarplötum.
Speedglass G5-01 logsuðuhjálmurinn stuðlar að vörn fyrir augu og andlit
notandans gegn neistum, skvettum, skaðlegri útfjólublárri geislun og
innrauðri geislun sem kemur til vegna tiltekinna aðferða við log-/gassuðu.
Logsuðuhjálmurinn verndar einnig gegn tilteknum aðskotaefnum í lofti ef
hann er notaður með samþykktri öndunargrímu.
VARÚÐ!
Rétt val, þjálfun, notkun og viðeigandi viðhald eru allt nauðsynlegir þættir
til að varan geti varið notandann fyrir hættu. Ef öllum
notkunarleiðbeiningum þessara persónuhlífa er ekki fylgt og/eða ef
persónuhlífarnar eru ekki notaðar rétt í heild sinni allan váhrifatímann getur
það haft skaðleg áhrif á heilsufar notandans og leitt til alvarlegra eða
lífshættulegra sjúkdóma eða varanlegrar fötlunar. Til að varan henti og sé
notuð rétt skal fylgja staðbundnum reglugerðum og fara eftir öllum
upplýsingum sem með henni fylgja.
^
Veitið viðvörunaryfirlýsingum sérstaka athygli þar sem í þær er
vísað.
VIÐURKENNINGAR
Þessi persónulegi hlífðarbúnaður er CE-merktur og í samræmi við
reglugerð Evrópuþingsins um persónuhlífar, tilskipanir og samhæfða
evrópska staðla, eins og tilgreint er á mynd 16, sem einnig inniheldur
upplýsingar um tilkynnta aðilann sem hefur gefið út
ESB-gerðarprófunarvottorð fyrir þennan persónulega hlífðarbúnað (eining
B) og þegar við á, tilkynnta aðilann sem ber ábyrgð á eftirliti með
gæðakerfi framleiðslu á persónuhlífunum (eining D).
EB-gerðarprófunarvottorð og samræmisyfirlýsingu er að finna á
www.3M.com/welding/certs
TAKMARKANIR Á NOTKUN
^
Notið aðeins með upprunalegum 3M-varahlutum og fylgihlutum sem
taldir eru upp í sérleiðbeiningum og innan þeirra notkunarskilyrða sem
fram koma í tæknilýsingunni.
^
Notkun staðgönguhluta, merkingar, málning eða breytingar sem ekki
eru tilgreindar í þessum notendaleiðbeiningum kunna að skerða vörnina
verulega og gætu ógilt kröfur samkvæmt ábyrgðinni eða valdið því að
varan uppfylli ekki skilyrði verndarflokka og viðurkenninga.
^
Ef öryggisgleraugu eru notuð yfir venjuleg gleraugu kunna venjulegu
gleraugun að taka við og leiða áfram högg sem skapar notandanum
hættu.
^
Augngler úr hertu gleri skal eingöngu nota með stuðningsgleri af réttri
gerð.
^
Speedglas logsuðuhjálmurinn er ekki hannaður til suðu/skurðar fyrir
ofan höfuð þegar hætta er á brunasárum af völdum bráðins málmefnis
sem fellur niður.
^
Efni sem geta komist í snertingu við húð notenda munu ekki valda
ofnæmisviðbrögðum nema hjá minnihluta notenda. Þessar vörur innihalda
ekki íhluti sem gerðir eru úr náttúrulegu gúmmílatexi.
^
Notið ekki sem öndunarhlíf gagnvart óþekktum aðskotaefnum í lofti eða
þegar styrkur aðskotaefna er óþekktur eða umsvifalaust hættulegur lífi eða
heilsu (IDLH).
^
Notið ekki í andrúmslofti þar sem súrefnisinnihald er minna en 19,5% (Í
hverju landi fyrir sig kunna að vera í gildi aðrar takmarkanir hvað varðar
súrefnisskort. Leitið ráða ef vafi leikur á málum).
^
Notið ekki í súrefnisauðguðu andrúmslofti.
^
Yfirgefið mengaða svæðið umsvifalaust ef: Einhver hluti kerfisins
skemmist, loftflæði í höfuðstykkið minnkar eða stöðvar, ef vart verður við
öndunarerfiðleika, svima eða önnur óþægindi, bragð eða lykt finnst af
aðskotaefnum eða vart verður við ertingu.
^
Mikill vindur, yfir 2 m/sek., eða mjög mikið álag (þar sem þrýstingurinn
innan í andlitsgrímunni getur orðið neikvæður) kann að minnka vernd.
Stillið búnaðinn eftir þörfum eða notið öndunarbúnað af öðru tagi.
^
Andlit notenda þurfa að vera nauðrökuð þar sem andlitsþétti
öndunarhlífarinnar snertir þau.
^
Takið logsuðuhjálminn ekki niður né slökkvið á loftstreyminu fyrr en
mengaða svæðið hefur verið yfirgefið.
^
Eingöngu skal setja síur fyrir öndunarhlíf í loftdæluna en ekki beint á
hjálminn/hettuna.
MERKINGAR Á BÚNAÐI
Logsuðuhjálmur:3M EN166B*, 3M EN175B, 3M EN12941 TH3, 3M
EN14594 3B
Hjálmgríma: 3M 1 BT N
3M = framleiðandi
1 = sjónglerjaflokkur
B = þol fyrir ögnum á miklum hraða við högg í meðallagi (120 m/sek.)
BT = þol fyrir ögnum á miklum hraða við högg í meðallagi (120 m/sek.) við
mjög hátt og mjög lágt hitastig (-5°C og +55°C)
N = móðuvörn
TH3 = nafngildi varnarþáttar 500, meiri styrktarkröfur til öndunarslöngu og
tengja.
3B = nafngildi varnarþáttar 200, meiri styrktarkröfur til öndunarslöngu,
loftleiðslu og tengja.
Ef táknin á höggmerkingunni (F,B) eiga ekki við um bæði ytri verndarplötu
og hjálmskel skal lægra verndarstigið eiga við um hlífðarbúnaðinn í heild
sinni
*EN 166: þegar tryggja þarf vernd gegn ögnum á miklum hraða við mjög
hátt/lágt hitastig skulu valin hlífðargleraugu vera merkt með bókstafnum T
strax á eftir bókstafnum sem táknar höggorku, þ.e. FT, BT eða AT. Ef
bókstafurinn T kemur ekki strax á eftir bókstafnum sem táknar höggorku
skal aðeins nota hlífðargleraugun gegn ögnum á miklum hraða við
stofuhita.
Aðrar merkingar á vörunni vísa í aðra staðla.
Z
= Lesið leiðbeiningarnar fyrir notkun
R
= Framleiðsluár
Q
= Framleiðslumánuður
UNDIRBÚNINGUR FYRIR NOTKUN
^
Gangið úr skugga um að varan sé heil (sjá mynd 1), óskemmd og rétt
samsett. Skipta verður út öllum skemmdum eða gölluðum hlutum fyrir
hverja notkun. Skipta skal um ytri verndarplötu/hjálmgrímu sem rispast
eða skemmist.
^
Logsuðuhjálmurinn er hitaþolinn en þó getur kviknað í honum eða hann
bráðnað í snertingu við opinn eld eða mjög heitt yfirborð. Haldið hjálminum
hreinum til að draga úr þessari hættu
^
Skoðið allan logsuðuhjálminn vandlega fyrir hverja notkun. Athugið
hvort sprungur eru til staðar og hvort ljós kemst í gegn. Sprungin, dælduð
eða rispuð gríma getur minnkað skyggni og skert vörnina verulega. Skipta
skal tafarlaust um alla skemmda íhluti. Fjarlægið hlífðarfilmu af fyrir
notkun.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
spöng
Stillið spöngina/logsuðuhjálminn eftir þörfum til að hann sitji sem
þægilegast, sjá myndir 2-4. Hægt er að snúa afturhluta spangarinnar á
hvolf, til dæmis til að gera ráð fyrir húfu sem er öfug, smá mynd 5a. Hægt
er að skipta á milli tveggja mismunandi höfuðpúða, annar er af venjulegri
stærð og hinn aðeins stærri, til að ná sem mestum þægindum. Sjá mynd
5b. Stillið staðsetningu loftslöngunnar með því að nota slönguhölduna sem
tengd er við afturhluta spangarinnar, sjá myndir 5c-5d.
BIÐSTAÐA OG NÚNINGUR VIÐ LÆKKUN
Logsuðuhjálmurinn er með tvo stillihnappa með mismunandi virkni sem
eru óháðir hvor öðrum. Hægri hnappurinn merktur FRICTION (núningur)
er fyrir núning við hreyfingu upp og niður. Ef þessum hnappi er snúið
réttsælis eykur það núning, sjá mynd 16a. Vinstri hnappurinn merktur
PARKING (biðstaða) er fyrir biðstöðu. Biðstaðan heldur logsuðuhjálminum
í uppréttri stöðu án þess að þörf sé á miklum núningi. Snúið hnappinum
réttsælis þar til æskilegri festingu er náð, sjá mynd 16b. Athugið! Ef þessi
hnappur er hertur um of verður ekki hægt að losa hjálminn úr biðstöðu og
ef hann er ekki hertur nóg mun hjálmurinn ekki læsast í biðstöðu. Ef óskað
er eftir núningi á báðum hliðum í staðinn er hægt að slökkva á biðstöðunni
með því að færa málmskinnuna, sjá mynd16c.
Summary of Contents for Speedglas G5-01
Page 5: ...4 1 1 2 3 2 4 3 5A ...
Page 6: ...5 5B 2 3 1 5C 6A 6B 6C 5D ...
Page 7: ...6 6D 7A 7B 7C 7D 7E 7F 8 1 2 3 4 9 ...
Page 8: ...7 10A 10B ...
Page 9: ...8 11D 11A 11C 11B ...
Page 10: ...9 12A 12B U P DOWN A I R A I R FACE V I S O R 13A 13B ...
Page 11: ...10 14A 14B 14C 4x 15B L PARKING click 15A R FRICTION ...