138
139
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
4.1 Eldunarleiðbeiningar
• Lækkaðu hitastigið þegar það fer að sjóða í pottinum.
• Ef þú notar lok getur þú stytt eldunartímann og sparað orku
því hitinn helst í pottinum.
• Notaðu eingöngu það magn af vökva eða feiti sem þörf er á
við eldamennskuna (of mikill vökvi lengir eldunartímann).
• Byrjaðu að elda matinn við hátt hitastig og lækkaðu hitann
svo handvirkt þegar maturinn er gegnumeldaður.
4.1.1 Hæg suða, sjóða hrísgrjón
• Hæg suða á sér stað þegar hitastigið er um það bil 85˚C
(loftbólur birtast af og til frá botninum og koma upp á
yfirborðið). Með þessari eldunaraðferð verður maturinn mjög
góður og vel eldaður þar sem bragðið fær að þróast án þess
að maturinn sé ofeldaður. Á þennan hátt á til dæmis að elda
súpur, steikur og sósur sem byggjast á eggjum/hveiti.
• Við tiltekna matargerð (þar með talið að sjóða hrísgrjón með
ísogsaðferðinni) getur hitinn þurft að vera aðeins hærri en
lægsta stillingin (þannig tryggir þú að maturinn sé rétt eldaður
og innan ráðlags tímaramma).
4.1.2 Steik brúnuð
Eldun á bragðgóðri steik:
1. Láttu kjötið vera við stofuhita í um það bil 20 mínútur áður en
það er eldað.
2. Hitaðu þykkbotna pönnu.
3. Penslaðu báðar hliðar steikarinnar með olíu. Settu smávegis
af olíu á heita pönnuna og settu steikina á hana.
4. Snúðu steikinni aðeins einu sinni þegar þú eldar hana.
Nákvæmur eldunartími er breytilegur eftir því hversu þykk
steikin er og hversu vel þú vilt að hún sé elduð. Eldunartíminn
getur verið á bilinu 2 til 8 mínútur á hvorri hlið. Þrýstu á
steikina til að kanna hversu vel elduð hún er – því stífari sem
hún er þeim mun gegnumsteiktari er hún.
5. Láttu steikina hvíla í nokkrar mínútur á heitri steikarpönnu svo
hún verði meyr.
4.1.3 Hrærsteikja mat
1. Notaðu wokpönnu með sléttum botni eða stóra
steikarpönnu ætlaða spanhellu.
2. Vertu tilbúin/n með öll hráefni og öll áhöld. Steiktu matinn
á skömmum tíma (það á ekki að taka langan tíma að
steikja). Ef þú ætlar að steikja mikið magn af mat skalt þú
skipta hráefnunum upp í minni skammta.
3. Forhitaðu pönnuna í stutta stund og helltu tveimur
matskeiðum af olíu á hana.
4. Byrjaðu alltaf á að elda kjötið fyrst ef þú ætlar að elda
mörg ólík hráefni (settu kjötið sem búið er að elda til hliðar
til að halda því heitu).
5. Steiktu grænmetið. Þegar það er orðið heitt og er enn
stökkt skaltu lækka hitann á hitasvæðinu, settu síðan kjötið
á pönnuna og bættu sósunni út á.
6. Hrærðu hráefnunum varlega saman og passaðu að þau
séu orðin heit í gegn áður en þú tekur pönnuna af hellunni.
7. Berðu matinn strax á borð!
4.2 Greining á litlum hlutum
Ef pottur/panna sem er of lítil eða ekki segulmögnuð (til dæmis
úr áli) eða annar lítill hlutur (til dæmis hnífur, gaffall eða lykill) er
settur á helluborðið, fer það sjálfkrafa í biðstöðu eftir um það bil
1 mínútu. Viftan heldur áfram að kæla niður spanhelluborðið í 1
mínútu í viðbót.
4. Viðmiðunarreglur fyrir eldamennsku
Farðu varlega þegar þú steikir – olía og feiti hitna mjög hratt (sérstaklega ef þú notar orkuaukningu). Við mjög hátt hitastig kviknar í
olíu og feiti (það getur verið mjög hættulegt og skapað eldhættu).