16
Rengør BABY born® Sister.
Ved udvendig tilsmudsning kan en rengøring ske med gængse skyllemidler.
IS
Kæru foreldrar.
Við óskum ykkur til hamingju með kaupin á leikfangi frá Zapf Creation AG. Áður en leik-
fangið er tekið í notkun mælum við með því að lesa notkunarleiðbeiningarnar vandlega og
geyma þær ásamt umbúðunum til síðari nota, ef þörf skyldi verða á.
ÞAÐ SEM BRÚÐAN GETUR GERT
Hún hreyfir sig
Af því að BABY born® Sister hefur liðamót á handleggjum, fótleggjum og hálsi er hægt
að láta hana hreyfa sig. Hún getur staðið ein eða slakað á og setið í makindum. (Myndir
1 og 2)
Eftirfarandi liðamót eru hreyfanleg:
Mynd 3
- Höfuð (1)
- 2 x axlir (2)
- 2 x fótleggir (3)
- 2 x hné (4)
Hárið
BABY born® Sister er með mjúkt gervihár í hágæðaflokki, sem hægt er að þvo með volgu
vatni (hám. 37 ºC). Ef hárið er skolað með venjulegu mýkingarefni eftir að það er þvegið
verður auðveldara að greiða það auk þess sem það dregur úr hættu á hárlosi. Blauta hárið
á að láta loftþorna af sjálfu sér.
Ábendingar
Ef hárið flækist í bendla má losa úr þeim og bursta hárið hægt og hægt frá endum til róta.
Þannig er best að koma í veg fyrir að hárið myndi flóka eða göndla.
Athugið!
Hárið á BABY born® Sister er úr nælonþráðum og má því ekki komast í snertingu við hita,
eins og t.d. heitt vatn, heitt loft úr hárþurrkara eða heitt krullujárn. Ekki má nota hárlit eða
skol á hárið á BABY born® Sister. Ekki ætti heldur að nota hárlakk, hárúða, lakk eða gel
í hárið.
Hún getur drukkið og grátið
BABY born® Sister getur drukkið og grátið í alvörunni. Til þess þarf að fylla pelann sem fyl-
gir með hreinu neysluvatni. Þegar BABY born® Sister er gefið að drekka á að halda henni
uppréttri. Gefið henni ekkert annað en vatn að drekka. Allir aðrir vökvar geta stíflað slöngur-
nar og vatnsgeyminn innan í brúðunni. Munnstykkið þarf að skrúfa fast á pelann. Til að gefa
BABY born® Sister að drekka þarf að stinga pelanum djúpt inn í munninn á henni. Með því
að þrýsta á hliðarnar á pelanum getur BABY born® Sister drukkið um það bil 2/3 úr honum.
Til þess að BABY born® Sister geti grátið raunverulegum tárum þarf að þrýsta nokkrum
sinnum þétt á hægri handlegginn á henni.
Hún fer í bað
Hægt er að baða BABY born® Sister í baðkerinu eða taka hana með í sundlaugina. Hins
vegar ætti ekki að setja hana á kaf í vatnið. BABY born® Sister ætti ekki að vera lengi ein
og án eftirlits í beinu sólarljósi (hám. 1 klst.).
Áður en BABY born® Sister er böðuð þarf að ganga úr skugga um að ventillinn á bakinu á
henni sé lokaður (skoran á lokinu á að vera lóðrétt). Til að baða hana á eingöngu að nota
kalt eða volgt vatn og venjuleg baðefni sem henta fyrir börn. Ekki ætti að leika sér með
BABY born® Sister lengur en 1 klukkustund í baðvatni né heldur í klórblönduðu eða söltu
vatni, því þá er ekki hægt að útiloka kemísk áhrif eða upplitun á efni brúðunnar. Eftir baðið
Содержание 820704
Страница 1: ...1 820704...
Страница 37: ...37...