![3M DBI-SALA LAD-SAF Series Скачать руководство пользователя страница 109](http://html1.mh-extra.com/html/3m/dbi-sala-lad-saf-series/dbi-sala-lad-saf-series_installation-instructions-manual_443913109.webp)
109
3.9
STREKKT Á KERFINU:
;
Hugsanlega er nauðsynlegt að endurstrekkja kerfið öðru hverju. Þetta er háð lengd þess og því umhverfi þar sem það er
uppsett. Mjög mikið hitastigsmunur og mjög löng kerfi gera kröfu um endurstrekkingu öðru hverju.
Að stilla og strekkja burðarkapalinn:
1.
Sjá mynd 10. Skrúfið strekkingarró (A) á enda spennustangarinnar (B) þar til 3-5 skrúfgangar eru sýnilegir fyrir neðan róna.
Setja skal kapalinn inn í söðulklemmurnar (C). Lyfta skal upp strekkingarsamsetningunni þar til strekkingarskrúfan kemur út
um botnskinnuna (D). Festið rær á klafaklemmum og herðið í 35 ft-lb. (47,5 N-m). Festa skal og strekkja þangað til rauf (E)
kemur í ljós fyrir ofan toppfestinguna. Festa skal j-skrúfu (F) á móti strekkingarskrúfunni. Skera skal burt allan auka kapal
rétt fyrir neðan lægri söðulklemmuna.
4.0
AUÐKENNING OG SKOÐUN EFTIR UPPSETNINGU KERFIS:
A.
Setjið uppsetningar- og viðhaldsmerkingar á áberandi stað á mannvirkinu. Notið stálvírinn sem fylgir með merkingunni til að
festa merkinguna við vinnupallinn. Áður en merking er sett upp skal athuga eftirfarandi:
•
Uppsetningardagur
•
Uppsett af
•
Hámarks fjöldi notanda á hverju kerfi
•
Lengd kerfis
Notið málmstimpil með bókstöfum til að merkja merkimiðann. Skráið auðkennisupplýsingar kerfis í
uppsetningargátlistann
í
lok þessarar handbókar.
B.
Að uppsetningu lokinni skal framkvæma lokaúttekt á kerfinu eins og hér segir:
• Tryggja skal að allar festingar séu til staðar og vel hertar.
• Tryggja skal að burðarkapallinn sé rétt strekktur. Ekki skal nota Lad-Saf
™
kerfi ef botn kapalsins er ekki festur/strekktur
miðað við samsetningu botnfestingarinnar.
• Tryggja skal að burðarkapallinn sé settur upp í samræmi við mynd 11.
• Tryggja skal að burðarkapallinn sé ekki að núast í sundur við mannvirkið á einhverjum stað.
• Tryggja skal að upplýsingar um kerfið komi fram á merkimiða.
5.0 EFTIRLIT
5.1
TÍÐNI EFTIRLITS:
Til að fá upplýsingar um tíðni eftirlits, eftirlitsþrep og notkun Lad-Saf sveigjanlega kapal öryggiskerfinu, skal skoða
notkunarleiðbeiningar (IFU) 3M Fall Protection handbækur nr. 5908555, 5908556 og 5908301.
5.2
RFID MERKI:
Staðsetning:
3M-varan sem fjallað er um í þessum notkunarleiðbeiningum er með rafmerki (RFID). RFID-merki má nota með
RFID-merkjaskanna til að skrá niðurstöður vöruskoðunar. Sjá staðsetningu RFID-merkisins á mynd [X].
FÖRGUN:
Fyrir förgun skal fjarlægja RFID-merkið af vörunni og farga því / endurvinna í samræmi við staðbundnar reglur. Frekari
upplýsingar um hvernig á að fjarlægja RFID-merkið eru á vefsvæðinu sem hægt er að fara á með tenglinum hér að neðan.
Ekki má farga vörunni með óflokkuðu heimilissorpi. Yfirstrikaða ruslatunnutáknið sýnir að farga verður öllum raf- og rafeindabúnaði í samræmi við
staðbundin lög í gegnum viðeigandi skila- og söfnunarkerfi. Hafið samband við söluaðila eða 3M-fulltrúa á staðnum til að fá frekari upplýsingar.
Frekari upplýsingar má nálgast á vefsvæði okkar:
http://www.3M.com/FallProtection/RFID
6.0 VIÐHALD, ÞJÓNUSTA OG GEYMSLA
6.1
Ef burðarkapallinn fyllist af olíu, feiti, málningu eða öðru efni skal hreinsa hann með volgu sápuvatni. Þurrkaðu af kaplinum með
hreinum, þurrum klút. Þurrkaðu ekki með hita. Ekki nota sýru eða ætandi efni sem geta skemmt kapalinn.
7.0 TÆKNILÝSING
7.1
Allar topp- og botnfestingar, kapalbrautir, burðarkapall og festingar eru gerðar úr galvaníseruðu eða ryðfríu stáli. Hafðu samband
við 3M Fall Protection til að fá tæknilýsingar um efnið ef þörf krefur. LAD-SAF™ kerfið, þegar það er uppsett skv. leiðbeiningum,
uppfyllir OSHA 1910.140, OSHA 1926.1053, OSHA 1910.29, OSHA 1926.502, ANSI Z359.16, CSA (Z259.2.5) og CE (EN353-
1:2014+A1:2017) staðla.
Samræmisyfirlýsing: www.3M.com/FallProtection/DOC
8.0
MERKINGAR Lad-Saf kerfis
;
Vinsamlegast notastu við notendahandbókina sem fylgir Lad-Saf™ aftengjanlegu kapalslífarinnar til að nálgast upplýsingar um rétta notkun
og viðhald þessa kerfis.
Содержание DBI-SALA LAD-SAF Series
Страница 2: ......
Страница 4: ...4 5 A B 8 9 6 C 1 4 in 0 635cm 1 1 8 in 2 8cm 4 in 10 2cm 7 W1 6116635 ...
Страница 6: ...6 12 T 20 25 ft lbs 27 34 Nm 13 A A A B A B A ...
Страница 9: ...9 21 ...
Страница 14: ...14 ...
Страница 127: ...127 ...
Страница 138: ...138 ...
Страница 270: ...270 ...