HREINGERNING
Slökkvið fyrst á vélinni og takið hana úr
sambandi, eða slökkvið á straumrofa.
Hreinsið vélina gaumgæfilega þegar eftir
notkun.
Ef þið hafið notað teningsrist (3:G), látið
hana sitja eftir í vélinni og ýtið fyrst
teningunum sem eftir sitja út með burstanum
(4:N).
Fjarlægið lausa hluta og þvoið þá og þurrkið
vel.
Þvoið aldrei hluti úr léttmálmi í uppþvottavél
nema þá sem merktir eru “diwash”.
Allan aukabúnað merktan ”diwash” má þvo í
uppþvottavél.
Öll skurðaráhöld má þvo í uppþvottavél.
Þurrkið af vélinni með rakri grisju.
Skiljið aldrei hnífa skurðarskífnanna eftir
blauta þegar þeir eru ekki í notkun.
Geymið alltaf skurðarskífurnar (3) á
verkfærahenginu (4:M) á veggnum.
Notið aldrei oddhvöss verkfæri né
háþrýstidælu.
Sprautið aldrei vatni á hliðar vélarinnar.
GANGIÐ ÚR SKUGGA
UM VIKULEGA
Að vélin stöðvist jafnskjótt og þrýstiplötunni
(1:A) er lyft og snúið til hliðar og fari aftur í
gang þegar henni er snúið til baka og þrýst
niður.
Að ekki sé unnt að gangsetja vélina þegar
mataranum/lokinu er lyft og þrýstiplötunni
síðan ýtt niður.
Takið úr sambandi eða slökkvið á rofanum og
gangið svo úr skugga um að kapallinn sé heill
og ósprunginn.
Ef önnur hvor öryggisaðgerðin verkar ekki
eða ef sprungur eru í raflínunni ber að kalla á
viðgerðarmann áður en vélin er tengd aftur.
Að öxull þrýstiplötunnar (1:I) sé nægilega
smurður og snúist óhindrað. Ef öxullinn er
stirður skal hreinsa hann vel og smyrja síðan
með nokkrum dropum af smurningsolíu.
Að hnífar og rifjárn séu heil og bíti vel.
BILANALEIT
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast og
fer ekki aftur í gang.
VIÐBRÖGÐ: Gangið úr skugga um að
tengillinn sitji í vegginnstungu, eða kveikt sé á
straumrofa. Gangið úr skugga um að
matarinn/lokið (1:C) og öxull þrýstiplötunnar
(5:I) séu læst í réttri stöðu. Ýtið þrýstiplötunni
(1:A) niður í matarann. Gangið úr skugga um
að vör í töfluskáp á staðnum séu heil og hafi
rétta amper-tölu. Bíðið nokkrar mínútur og
reynið að gangsetja vélina á nýjan leik. Kallið
til viðgerðarmann.
BILUN: Vélin vinnur illa eða sker slælega.
VIÐBRÖGÐ: Veljið rétta skurðarskífu eða
samsetningu á skurðarskífum (3). Skrúfið
hnífskrúfuna (1:J) fasta. Gangið úr skugga um
að hnífar og rifjárn séu heil og bíti vel. þrýstið
hráefninu laust niður.
BILUN: Skurðarskífan (3) situr blýföst.
VIÐBRÖGÐ: Notið ávallt útmötunarskífuna
(1:D). Notið þykkan leðurhanska eða annað
sem hnífar skurðarskífnanna ná ekki gegnum
og snúið skurðarskífunni réttsælis þangað til
hún losnar.
BILUN: Hnífskrúfan (1:J) situr blýföst.
VIÐBRÖGÐ: Skrúfið hnífskrúfuna af réttsælis
með lyklinum (1:K).
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
VÉL: Mótor: 0.55 kW. 100 V, 1-fasa, 50-
60 Hz. 110-120 V, 1-fasa, 60 Hz. 220 V,
1-fasa, 50 Hz. 230-240 V, 1-fasa, 50 Hz.
230 V, 3-fasa, 50 Hz. 400 V, 3-fasa, 50
Hz. 440 V, 3-fasa, 60 Hz.Hitastýrð
hreyfilvörn. Hraðaskipting: Gírskipting.
Öryggiskerfi: Tveir öryggisrofar.
Varnarflokkur: IP44. Varnarflokkur
þrýstihnappa: IP 65. Veggtenging:
Jarðtengd, 1-fasa, 10 A, eða 3-fasa 16 A.
Bræðivör í töfluskáp á staðnum 10 A treg.
Hljóðstyrkur LpA (EN 31201): 72 dBA.
SKURÐARSKÍFUR: Þvermál: 185 mm.
Snúningshraði: 350 snún./mín (50 Hz), 420
snún./mín (60 Hz).
EFNI: Vélarhús og matarahólkur: Rafhúðað
eða gljáfægt álblendi. Skífur skurðarverkfæra:
Álblendi eða acetalplast.Skurðarhnífar:
Hnífastál í hæsta gæðaflokki.
NETTÓÞYNGD: Vél: 21 kg. Skurðarskífur: U.
þ.b. 0.5 kg að jafnaði.
STAÐLAR: EU. Vélartilskipun: 89/392/EEC .
Содержание VPU250
Страница 1: ...VPU250 Veg Prep Unit Installation Operation ...
Страница 2: ...C L 1 D E F J K J A I G B H ...
Страница 3: ...3 A B C D2 D1 F G1 G2 H K L A B C D 2 5 4 N M I P L ...