![elvita 114032 Скачать руководство пользователя страница 67](http://html1.mh-extra.com/html/elvita/114032/114032_user-manual_2397888067.webp)
67
IS
ÞRIF
Byrjaðu á því að aftengja tækið frá rafmagni.
1.
Hreinsaðu ofnrýmið með eilítið rökum klút eftir notkun.
2.
Hreinsaðu allan aukabúnað á hefðbundin hátt með uppþvottalegi.
3.
Þrífðu varlega hurð, þéttingar og nálæga hluti með rökum klút þegar óhreinindi myndast þar.
4. Ekki nota hreinsiefni með svarfefnum eða hvassar stálsköfur til að þrífa glerhurðina því slíkt
getur rispað yfirborðið sem getur leitt til þess að glerið splundrast.
5. Ráð um þrif á innra byrði ofnsins: Settu hálfa sítrónu í skál og fylltu með 300 ml af vatni.
Stilltu svo ofninn á 100% örbylgjuafl og láttu hann ganga í 10 mínútur. Þurrkaðu ofninn með
mjúkum og þurrum klút.
NOTAÐU RÉTTAN BÚNAÐ
Sjá leiðbeiningar um efni sem má nota í örbylgjuofni og efni sem ekki má nota
í örbylgjuofni. Til eru viss áhöld sem ekki eru úr málmi og eru ekki örugg til
notkunar í örbylgjuofni. Ef þú ert í vafa geturðu prófað áhaldið á eftirfarandi hátt:
Að prófa áhöld:
1. Fylltu örbylgjuhæft ílát með 1 bolla af köldu vatni (250 ml) og settu það inn í
örbylgjuofninn ásamt viðkomandi áhaldi.
2.
Hitaðu á hámarkshita í 1 mínútu.
3. Snertu áhaldið gætilega. Ef tómt áhaldið er heitt skaltu forðast notkun þess í
örbylgjuofninum.
4.
Ekki hita umfram 1 mínútu.
HÆTTA Á LÍKAMSÁVERKUM
Það er hættulegt öllum öðrum en fagaðilum að þjónusta eða gera við tækið ef slíkt felur í sér að
fjarlægja hlíf sem gefur vernd gagnvart örbylgjuorku.