![background image](http://html1.mh-extra.com/html/landmann/rexon-4-1-cook/rexon-4-1-cook_assembly-and-operating-instructions-manual_3692849038.webp)
38
í kaflanum „Kröfur til íhluta sem leiða gas“ – „Þrýstijafnari“ eða
„Gasslanga“.
1. Setja skal fullsamsettagrillið upp utandyra á traustum,
láréttum og sléttum fleti. Gæta skal þess að nægilegt pláss sé
umhverfis grillið. Við val á uppsetningarstað skal fara eftir því
sem kemur fram í kaflanum „Öryggisleiðbeiningar“.
2. Ef þörf krefur skal festa hjólin með bremsu með því að snúa
vængjarónum.
3. Allir stillihnapparnir verða að vera í stöðunni „slökkt“
(örin á stillihnappinum vísar upp). Ef svo er ekki skal ýta á
stillihnappinn og snúa honum í stöðuna „slökkt“
.
4. Setja skal gaskútinn niður í traustri, uppréttri stöðu við hliðina
á grillinu. Skrúfað verður að vera fyrir loka gaskútsins.
5. Sjá skal til þess að svæðið umhverfis grillið og gaskútinn sé
aðgengilegt og laust við hindranir.
6. Ef ekki er þegar búið að tengja gasslönguna við grillið skal
festa annan enda slöngunnar við gastengið á grillinu og hinn
endann við þrýstijafnarann, ef þess þarf. Festingarmátinn fer
eftir því hvernig gasslangan er útfærð fyrir viðkomandi land.
7. Tengja skal þrýstijafnarann samkvæmt viðeigandi
leiðbeiningum. Ef engar leiðbeiningar fylgja með
þrýstijafnaranum er hér á eftir fjallað um nokkra mismunandi
tengingarmáta. ATHUGIÐ: Myndirnar geta verið frábrugðnar.
8. Þegar búið er að tengja gaskútinn skal framkvæma lekaprófun
(sjá kaflann „Lekaprófun“).
L
Við mælum með því að hafa gaskútinn við hliðina á
grillinu á meðan það er í notkun.
# 12270, 12274:
Hins vegar er hægt að geyma
gaskútinn í skápnum bæði meðan á notkun stendur
og eftir að henni lýkur, svo fremi sem hann er ekki
yfir leyfilegri hámarksstærð (sjá kaflann „Tæknilegar
upplýsingar“). Skal þá setja gaskútinn í þar til ætlaða gróp
í botnplötunni.
Þrýstijafnari settur á
Þrýstijafnari með vinstri skrúfgangi
(mynd
C
)
1. Skrúfaðu þrýstijafnarann
þéttingsfast á skrúfgang loka
gaskútsins. Athugaðu að um vinstri skrúfgang er að ræða og
verður því að skrúfa rangsælis.
2. Til þess að gas streymi út og hægt sé að kveikja upp í grillinu
þarf að snúa lokanum (
a
) á gaskútnum rangsælis. Skrúfað er
fyrir lokann með því að snúa honum réttsælis.
Þrýstijafnari með armi
(mynd
D
)
1. Færðu arminn á þrýstijafnaranum (
b
) í stöðuna „slökkt“.
2. Ýttu þrýstijafnaranum á loka gaskútsins þar til hann smellur
fastur.
3. Til þess að gas streymi út og hægt sé að kveikja upp í grillinu
skal færa arminn í stöðuna „kveikt“. Til að loka fyrir gasið skal
færa arminn í stöðuna „slökkt“.
Þrýstijafnari með mansettu
(mynd
E
)
1. Færðu arminn á þrýstijafnaranum (
b
) í stöðuna „slökkt“.
2. Renndu mansettu þrýstijafnarans upp og haltu henni þar.
3. Ýttu þrýstijafnaranum á loka gaskútsins og ýttu mansettunni
niður til að loka.
4. Ef þrýstijafnarinn smellur ekki fastur þarf að endurtaka þetta.
5. Til þess að gas streymi út og hægt sé að kveikja upp í grillinu
skal færa arminn í stöðuna „kveikt“. Til að loka fyrir gasið skal
færa arminn í stöðuna „slökkt“.
Þrýstijafnari fyrir gashylki
(mynd
F
)
Nota verður gashylki með skrúfgangi.
1. Áður en gashylkið er tengt skal ganga úr skugga um að
gúmmíþéttingin á þrýstijafnaranum sé fyrir hendi og í góðu lagi.
2. Lokaðu fyrir lokann (
c
) á þrýstijafnaranum.
3. Skrúfaðu gashylkið rangsælis í þrýstijafnarann neðan frá.
4. Til þess að gas streymi út og hægt sé að kveikja upp í grillinu
skal skrúfa frá lokanum (
c
). Skrúfað er fyrir lokann til að loka
fyrir gasið.
Þrýstijafnarinn tekinn af
1. Gakktu úr skugga um að skrúfað sé fyrir lokann á gaskútnum
eða þrýstijafnaranum.
2. Skrúfaðu frá stillihnappi grillsins til að tæma afgangsgas úr
kerfinu.
3. Til að fjarlægja þrýstijafnarann skal framkvæma
uppsetningarskrefin í öfugri röð.
LEKAPRÓFUN
AÐGÁT!
Aldrei skal leita að gasleka með opnum eldi! Áður en leitað
er að leka skal ganga úr skugga um að enginn opinn eldur
sé nálægt og að ekki geti myndast neistar. Neistar eða
logar geta valdið sprengingum sem geta haft í för með sér
alvarlegt eða banvænt líkamstjón eða munatjón.
Eftir fyrstu tengingu, eftir hver skipti á gaskút eða ef grillið hefur
ekki verið notað lengi verður að framkvæma lekaprófun á öllum
gasleiðandi íhlutum til að tryggja að gas leki ekki úr neinum
tengingum.
Ef þrýstimælir er á þrýstijafnaranum skal fylgja leiðbeiningunum í
leiðarvísinum fyrir þrýstijafnarann til að framkvæma lekaprófun.
Annars skal nota lekaleitarefni úr viðeigandi sérverslun og fylgja
leiðbeiningum framleiðanda.
Ekki er öruggt að hlusta eftir
leka!
GRILLRÁÐ
1. Áður en þú byrjar að grilla skaltu
taka til allt
sem þú þarft að
nota. Á meðan þú ert að grilla ættir þú alltaf að geta fylgst
með grillinu og matnum án þess að þurfa stöðugt að vera að
fara inn í eldhús.
2.
Kjötið á að vera við stofuhita
áður en það er grillað, því
þannig eldast það jafnt og vel.
3. Gættu þess að
grillgrindurnar séu hreinar.
Ef leifar eru á
grillgrindinni festist maturinn við þær.
4.
Grillmatur með þunnri olíuhúð
brúnast jafnar og loðir síður
við grillgrindina.
5. Áður en byrjað er að grilla skal
bera olíu á
steypujárnsgrindurnar
svo maturinn festist ekki við þær.
6.
Forhita skal grillið
með lokið á til að tryggja að maturinn
festist ekki við grillgrindina og að hægt sé að snöggsteikja
hann. Með þessum hætti eru einnig brenndar burt matarleifar
frá því grillið var síðast notað. Einnig skal forhita grillið þegar
grilla á við miðlungs eða lágt hitastig.
7.
Ekki setja of mikinn mat
á grillgrindina. Hafðu nægilega
mikið bil á milli stykkja svo hægt sé að grípa utan um þau og
færa þau til með þægilegum hætti.
8. Ef notast er við
kryddlög, sósu, gljáa með miklum sykri
eða annað hráefni sem brennur auðveldlega við skal ekki
pensla því á
fyrr en síðustu 10 til 15 mínúturnar
.
9. Við mælum með því að
lokið sé haft á
á meðan verið er að
grilla. Þannig verður minni hætta á að eldur blossi upp og
maturinn grillast hraðar og með jafnari hætti. Gæta skal þess
að opna lokið ekki of oft til að kíkja á matinn, því þá berst
óþarflega mikið loft inn og varmi og reykur leita út.
10. Til þess að steikin fái fallegt mynstur og góða skorpu verður
að gæta þess að
snúa henni ekki of oft.
Í flestum tilvikum
skal aðeins snúa matnum einu sinni og ekki fyrr en hann er
IS
REX41_MOD_Inlay_LM_M_A4_SCA_V1.indb 38
REX41_MOD_Inlay_LM_M_A4_SCA_V1.indb 38
08.11.2022 18:45:55
08.11.2022 18:45:55