
• Hreinsaðu tækið með rökum og mjúkum klút. Notaðu aðeins hlutlaus þvottaefni. Notaðu ekki
rispandi efni, stálull, leysiefni eða málmhluti.
• Ef þú notar ofnasprey skaltu fara eftir öryggisleiðbeiningum á umbúðum þess.
2.5 Hreinsun með eldglæðingu
AÐVÖRUN!
Hætta á meiðslum / eldsvoða / uppgufun efna (gufaureykur) við
eldglæðingarstillingu.
• Áður en sjálfshreinsunaraðgerð með eldglæðingu er sett í gang eða fyrsta notkun skaltu
fjarlægja eftirfarandi úr holrými ofnsins:
– Allar matarleifar, dreggjar, olíu eða feiti sem lekið hefur niður.
– Alla hluti sem hægt er að losa (þ.m.t. plötur, plötubera í hliðum o.s.frv. sem fylgja
vörunni), sérstaklega alla viðloðunarfría potta, pönnur, bakka, áhöld o.s.frv.
• Lestu leiðbeiningar fyrir eldglæðingu vandlega.
• Haldið börnum frá heimilistækinu þegar hreinsun með eldglæðingu stendur yfir.
Heimilistækið verður mjög heitt og berst heitt loft úr loftopum að framan.
• Hreinsun með eldglæðingu er aðgerð með háum hita sem getur losað gufur út frá leifum eftir
eldun og byggingarefni og er því sterklega mælt með fyrir notendur að:
– Tryggja góða loftræstingu á meðan á hreinsun með eldglæðingu stendur og eftir hana.
– Tryggja góða loftræstingu á meðan á fyrstu notkun með hámarkshita stendur og eftir
hana.
• Ólíkt mönnum geta sumir fuglar og skriðdýr verið mjög viðkvæm fyrir gufum sem hugsanlega
losna við hreinsunarferli allra ofna sem búnir eru eldglæðingu.
– Fjarlægðu gæludýr (sérstaklega fugla) úr nálægð við heimilistækið meðan á hreinsun
með eldglæðingu og fyrstu notkun með hámarkshita stendur og eftir það.
• Lítil gæludýr geta einnig verið mjög viðkvæm fyrir staðbundnum hitabreytingum í námunda
við ofna með eldglæðingu meðan á sjálfhreinsunarferli með eldglæðingu stendur yfir.
• Viðloðunarfrítt yfirborð á pottum, pönnum, bökkum, áhöldum o.s.frv. geta orðið fyrir
skemmdum vegna mikils hita við eldglæðingu í öllum ofnum sem búnir eru eldglæðingu og
geta líka gefið frá sér lítillega skaðlegar gufur.
• Gufur sem koma frá öllum ofnum með eldglæðingu / matarleifum samkvæmt lýsingu eru ekki
skaðlegar fyrir manneskjur, þ.m.t. börn eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma.
2.6 Innri lýsing
AÐVÖRUN!
Hætta á raflosti.
• Varðandi ljósin inn í þessari vöru og ljós sem varahluti sem seld eru sérstaklega: Þessi ljós
eru ætluð að standast öfgakenndar aðstæður í heimilistækjum eins og hitastig, titring, raka
eða til að senda upplýsingar um rekstrarstöðu tækisins. Þau eru ekki ætluð til að nota í
öðrum tækjum og henta ekki sem lýsing í herbergjum heimila.
• Þessi vara inniheldur ljósgjafa í orkunýtniflokki G.
• Notaðu aðeins ljós með sömu tæknilýsingu.
2.7 Þjónusta
• Hafðu samband við viðurkennda þjónustumiðstöð til að gera við heimilistækið.
• Notaðu eingöngu upprunalega varahluti.
132/252
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR