102
2.5 SAMHÆFI TENGJA:
Tengi eru talin samhæf við tengihluta þegar þau hafa verið hönnuð til að vinna saman þannig
að stærðir þeirra og lögun valda því ekki að hliðarbúnaður þeirra opnast fyrir slysni, óháð því hvernig þau eru stillt.
Hafðu samband við 3M ef þú ert með einhverjar spurningar um samhæfi. Tengi (krókar, karabínur og D-hringir) verða
að geta stutt að minnsta kosti 22 kN (5.000 pund). Tengi verða að vera samhæf festingunni eða öðrum kerfishlutum.
Ekki nota búnað sem er ekki samhæfur. Tengi sem eru ósamhæf geta losnað fyrir slysni (sjá mynd 4). Tengi verða
að vera samhæf að stærð, lögun og styrkleika. Þörf er á sjálflæsandi smellukrókum og karabínum. Ef tengihluti sem
smellukrókur eða karabína er fest við er of lítill eða óreglulegur að lögun gæti ástand komið upp þar sem tengihlutinn
beitir afli á hlið smellukróks eða karabínu (A). Þetta afl getur valdið því að hliðið opnast (B) og að smellukrókurinn eða
karabínan losnar frá tengipunktinum (C).
2.6 TENGING FRAMKVÆMD:
Aðeins skal nota sjálflæsandi smellukróka og karabínur með þessum búnaði. Tryggðu
að öll tengi séu samhæf að stærð, lögun og styrkleika. Ekki nota búnað sem er ekki samhæfur. Tryggðu að öll tengi
séu lokuð að fullu og læst. Tengi 3M (smellukrókar og karabínur) eru aðeins ætluð til notkunar eins og tilgreint er
í notkunarleiðbeiningum sérhverrar vöru. Á mynd 5 má sjá dæmi um ranga tengingu. Ekki tengja smellukróka og
karabínur:
A. Við D-hring sem annað tengi er fest við.
B. Á þann hátt sem mundi orsaka álag á hliðið. Stóra smellukróka ætti ekki að tengja við D-hringi af hefðbundinni
stærð eða álíka hluti sem mun orsaka álag á hliðið ef krókurinn eða D-hringurinn snýst, nema smellukrókurinn sé
búinn 16 kN (3.600 punda) hliði.
C. Við falska tengingu, þegar stærð og lögun pörunartengja eru ekki samhæf, og án sýnilegrar staðfestingar og
virðast vera að fullu fastir við festipunktinn.
D. Við hvorn annan.
E. Beint við belti eða dragreipi eða festingu (nema leiðbeiningar framleiðanda fyrir dragreipi og tengi heimili slíka
tengingu).
F. Við hlut sem er að lögun eða stærð þannig að smellukrókurinn eða karabínan lokast ekki og læsist, eða getur
rúllað af.
G. Á þann hátt sem kemur í veg fyrir að tengið samstillist rétt undir álagi.