OUTDOORCHEF.COM
103
VIÐHALD
Reglubundið viðhald grillsins tryggir rétta virkni.
• Athugið alla hluta sem leiða gas að minnsta kosti tvisvar á ári og í hvert sinn eftir langan tíma í geymslu. Kóngulær og önnur skordýr geta
valdið stíflum sem verður að lagfæra fyrir notkun.
• Ef grillið er oft dregið yfir ójöfnur skal kanna af og til hvort allar skrúfur eru fastar.
• Ef grillið er ekki notað í lengri tíma skal framkvæma
LEKAPRÓFUN
áður en það er tekið í notkun á ný. Ef spurningar vakna skal snúa sér til
umboðsaðila gassins eða sölustaðar.
• Til að forðast skemmdir vegna tæringar skal smyrja alla málmhluta með olíu áður en grillið er sett í geymslu í lengri tíma.
• Eftir langan geymslutíma og a.m.k. einu sinni á grilltímabilinu skal athuga gasslönguna með tilliti til sprungna, brota og annarra skemmda.
Skiptið strax um skemmda gasslöngu eins og lýst er í kaflanum
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
.
• Berið viðarolíu á alla viðarhluta einu sinni á ári – það vinnur gegn sprungumyndun.
• Hlífið grillinu fyrir umhverfisáhrifum með hentugri yfirbreiðslu frá OUTDOOR
CHEF
sem sett er á eftir að grillið hefur kólnað að fullu.
• Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir rigningu. Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
GERT VIÐ BILUN
Það kviknar ekki á brennaranum:
• Athugið hvort opið er fyrir gasstreymið á kútnum.
• Gangið úr skugga um að nóg gas sé á kútnum.
• Athugið hvort neistar frá rafskautinu hlaupa yfir í brennarann.
Enginn neisti:
• Gangið úr skugga um að rafhlaðan hafi verið sett rétt í (á grillum með rafkveikingu).
• Fjarlægðin milli brennara og rafskauts má ekki vera meiri en 5–8 mm.
• Athugið hvort snúrur í rafkveikingu og rafskauti eru vel festar.
• Setjið nýja rafhlöðu (gerð AAA, LR03, 1,5 volt) í rafkveikinguna (á grillum með rafkveikingu).
Ef ekki tekst að koma grillinu í gang með framangreindum úrræðum skal hafa samband við sölustað.
NOTENDAÁBYRGÐ / ÁBYRGÐ
Fyrir nánari upplýsingar um neytendaábyrgðina / ábyrgðina, vinsamlegast vísaðu til almennra skilmála og skilyrða undir
https://www.outdoorchef.com/agb
Eftirfarandi fyrirtæki er fulltrúi fyrir skráða vörumerkið OUTDOORCHEF
Outdoorchef AG | Eggbühlstrasse 28 | Postfach | 8050 Zürich-Schweiz | www.outdoorchef.com
* Listi yfir söluaðila er á vefsíðunni okkar á OUTDOORCHEF.COM
** Raðnúmer og vörunúmer eru á upplýsingalímmiðanum á grillinu
(sjá fyrsta kafla í þessum
NOTKUNARLEIÐBEININGUM
).