IS
IS
155
Að skipta um kerfi á meðan þvegið er upp
Það er aðeins hægt að breyta um þvottakerfi í upphafi þess (þegar aðeins lengra er komið í þvottakerfinu er
uppþvottaefnið losað út og dælir þvottavatni). Ef þú stöðvar þvottakerfið síðar þarf að endurræsa uppþvottavélina og setja í
uppþvottaefnishólfið á ný. Fylgdu leiðbeiningunum hér að neðan til að endurræsa uppþvottavélina:
1. Opnaðu hurðina smávegis til að stöðva þvottakerfi vélarinnar. Þegar skolarmurinn er hættur að snúast má opna vélina
alveg.
2. Haltu kerfishnappnum inni í að lágmarki 3 sekúndur til að stilla vélina á biðstöðu.
3. Nú er hægt að skipta yfir á það kerfi sem óskað er eftir.
Að bæta við uppþvottinn á meðan þvegið er
Hafir þú gleymt að setja eitthvað í uppþvottavélina er hægt að gera það áður en uppþvottaefnishólfið opnast. Sjá
leiðbeiningar hér að neðan um hvernig farið er að:
1. Opnaðu hurðina smávegis til að stöðva þvottakerfi vélarinnar.
2. Þegar skolarmurinn er hættur að snúast má opna vélina alveg.
3. Settu það í sem á að þvo.
4. Lokaðu hurðinni.
5. Uppþvottavélin fer í gang eftir 10 sekúndur.
VIÐVÖRUN
Það er hættulegt að opna uppþvottavélina á meðan
þvottakerfi er í gangi (þú getur brennt þig á heitri gufu).
3 sekúndur