![Scheppach 5901504901 Translation From The Original Instruction Manual Download Page 173](http://html1.mh-extra.com/html/scheppach/5901504901/5901504901_translation-from-the-original-instruction-manual_1211467173.webp)
173
IS
•
Skiptið um innleggið í borðinu þegar það er orðið
slitið.
•
Gangsetjið ekki vélina meðan hurðin fyrir
sagarblaðið eða öryggishlífin er opin.
•
Gætið þess að velja sagarblað og vinnsluhraða
sem hentar því verkstykki sem á að saga.
•
Byrjið ekki á að þrífa sagarblaðið fyrr en það hefur
algerlega numið staðar.
•
Stillið festibúnaðinn þannig að hann sé eins nálægt
verkstykkinu og hægt er.
•
Notið hanska við meðferð á sagarblaðinu og
grófum vinnsluefnum!
•
Meðan verið er að flytja sögina þarf öryggishlífin
á sagarblaðinu að vera í neðstu stöðu og nálægt
sagarborðinu.
•
Við geirungssögun með hallandi borði þarf að setja
samsíða leiðarann á neðri hluta borðsins.
•
Þegar sagaður er rúnnaður viður þarf að nota
festingu sem kemur í veg fyrir að verkstykkið geti
snúist.
•
Notið aldrei öryggishlífarnar til að lyfta söginni upp
eða flytja hana til.
•
Gætið þess að nota alltaf öryggishlífarnar fyrir
sagarblaðið og að þær séu rétt stilltar.
•
Haldið höndunum ávallt í öryggisfjarlægð frá
sagarblaðinu. Notið ýtiprik þegar sagaðir eru litlir
hlutir.
•
Geymið ýtiprikið í til þess ætlaðri festingu á vélinni
þannig að auðvelt sé að ná í það úr venjulegri
vinnustelling og það sé ávallt tiltækt.
•
Notandi vélarinnar er sá sem er í venjulegri
vinnustellingu.
6. Upplýsingar
Drif
Mótor
Riðstraumur
230-240V
Þriggja fasa
straumuwr
400V 3phase
Rafafl
1,5 kW (S1)
1,8 kW (S6
40%)
1,5 kW (S1) 1,8
kW (S6 40%)
Snúningshraði
1480 min
-1
Lengd
sagarblaðs
2895mm
Breidd
sagarblaðs
6-25mm
Breidd
sagarblaðs
max.
25mm
Sögunarhraði
700-1000m/min
Hæð inntaks
250mm
Breidd inntaks
375
Stærð
sagarborðs
400x548
Snúningssvið
sagarborðsins
-17 °/+45 °
Stærið
verkstykkis
mest
375x250mm
þyngd
98kg
Verkstykkið þarf að vera minnsta kosti 3 mm á hæð
og 10 mm á breidd.
Kennistærðir hávaða
Þau gildi sem greindust fyrir hljóðaflsstig
samkvæmt EN ISO 3746 eða samkvæmt EN 1807
(leiðréttingarstuðull k3 reiknaður samkvæmt viðauka
A.2 í EN 1807-1) reiknuð hljóðþrýstingsstig á
vinnustað samsvara þeim vinnuskilyrðum sem liggja
til grundvallar ISO 7960 viðauka J.
Uppgefin gildi eru gildi fyrir hávaðamyndun og þurfa
þess vegna ekki um leið að gefa til kynna örugg gildi á
vinnustað. Enda þótt samhengi sé á milli hámarksgilda
fyrri hávaðamyndun og hávaðamengunar er ekki hægt
að draga áreiðanlega ályktun þar af hvort nauðsynlegt
sé að gera frekari fyrirbyggjandi ráðstafanir eða ekki.
Atriði sem geta haft áhrif á hávaðamengun á
vinnustað eru meðal annars lengd áreitanna, einkenni
vinnurýmisins, aðrar uppsprettur hávaða o.fl. t.d. fjöldi
véla og önnur vinna sem er í gangi í grenndinni.
Örugg vinnustaðagildi geta einnig verið breytileg eftir
löndum. Þó ættu þessar upplýsingar að auðvelda
notandanum að meta hættur og möguleika á skaða.
Hljóðþrýstingsgildi L
pA
82,9 dB(A)
Óvissa K
pA
4 dB
Hljóðþrýstingsgildi L
WA
100,2 dB(A)
Óvissa K
WA
4 dB
Berið heyrnartól
Hávaði getur haft heyrnarleysi í för með sér.
7. Viðvarandi hættur
Vélin er gerð í samræmi við þekkta tækni og
viðurkenndar öryggisreglur. Þrátt fyrir það geta ýmsar
viðvarandi hættur verið til staðar við notkun hennar.
•
Hætta á slysum á fingrum og höndum vegna
sagarblaðs sem er í gangi ef verkstykkið er fært til
á rangan hátt. Slys vegna verkstykkis sem rennur
til vegna þess að það er fest eða því haldið á
rangan hátt, svo sem við vinnu án leiðara.
•
Heilsu manna getur verið hætta búin vegna
viðarryks og spóna. Skilyrðislaust skal nota
persónuhlífar svo sem öryggisgleraugu. Notið
ryksugukerfi!
•
Slys af völdum skemmds sagarblaðs. Athugið
ástand sagarblaðsins reglulega.
•
Slysahætta á fingrum og höndum þegar skipt er
um sagarblöð. Notið viðeigandi hlífðarhanska.
•
Slysahætta við gangsetningu vélarinnar vegna
sagarblaðs sem er á hreyfingu.
•
Hætta af völdum rafmagns ef notaðar eru
rafmagnstengingar sem ekki samrýmast
reglugerðum.
•
Hætta á líkamstjóni af völdum sagarblaðs sem
er á hreyfingu ef notandinn er með langt hár eða
í lausum vinnufatnaði. Nota skal persónulegan
öryggisbúnað svo sem hárnet og vera í aðskornum
vinnufatnaði.
•
Ef um er að ræða rifna drifreim eða rifið sagarband
geta hjólin snúist áfram. Bíða skal þar til vélin er
kyrr áður en hlífðarbúnaðurinn sem lokar þau af er
opnaður.
•
Auk þess geta verið til staðar ófyrirséðar hættur
þrátt fyrir fyrirbyggjandi aðgerðir.
•
Hægt er að draga úr ófyrirséðum hættum ef farið
er eftir „Mikilvægar leiðbeiningar“ og fyrirmælum
um „Rétt notkun“ ásamt notkunarleiðbeiningunum.
Summary of Contents for 5901504901
Page 4: ...Fig 2 Fig 1 1 9 2 1 3 4 5 6 2 2 19 18 17 7 8 15 24 23 16 11 12 21 20 13 10 14 22 29 30 4 ...
Page 5: ...Fig 3 9322 0282 1 2 4 5 3 6 Fig 4 5 ...
Page 6: ...Fig 5 Fig 6 Fig 7 Fig 8 Fig 9 Fig 10 Fig 11 20 28 22 20 Fig 11 1 14 31 31 6 ...
Page 8: ...Fig 16 Fig 17 Fig 18 Fig 19 Fig 20 a d b c e f f 30 Fig 15 27 27 26 8 ...
Page 9: ...Fig A Fig B Fig C Fig D Fig E Fig F 9 ...
Page 289: ...289 ...
Page 290: ...290 230 240V 50Hz 1 Phase 400V 50Hz 3 Phases ...
Page 291: ...291 ...
Page 292: ...292 ...
Page 293: ...293 ...