29
HALLDE • User Instructions
IS KLAR DEC-2014 / AAL
BILANALEIT
Til að koma í veg fyrir tjón á vélinni er RG-200
útbúin hitastýrðri mótorvörn sem slekkur
sjálfkrafa á vélinni ef hitastig hennar verður of
hátt. Hitastýrða mótorvörnin er með sjálfvirkri
endurstillingu, sem þýðir að hægt er að gang
-
setja vélina aftur þegar hún hefur kólnað, sem
tekur yfirleitt 10-30 mínútur.
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast
meðan hún er í gangi og ekki er hægt að
endurræsa hana.
LAUSN: Gangið úr skugga um að klóin sé
rétt í innstungunni. Gangið úr skugga um að
matarahólkurinn sé læstur í réttri stöðu. Færið
þrýstiplötuna niður í matarahólkinn. Gangið úr
skugga um að öryggi í töfluskápnum séu í lagi
og að þau séu af réttri gerð. Bíðið í nokkrar
mínútur og reynið svo að gangsetja vélina
aftur. Fari vélin enn ekki í gang skal fá löggiltan
fagmann til að skoða hana.
BILUN: Lítil vinnslugeta eða ófullnægjandi
árangur.
LAUSN: Gangið úr skugga um að rétt skurðar
-
verkfæri eða rétt samsetning af skurðar
-
verkfærum sé notuð. Komið kjarnahrein
-
sibúnaðinum fyrir. Gangið úr skugga um að
hnífarnir og skurðarskífurnar séu heilar og bíti
vel. Þrýstið matnum niður af minna afli.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja skurðarverkfæri.
LAUSN: Notið ávallt skrúflykil. Notið þykkan
leðurhanska eða öðruvísi hanska sem hnífar
skurðarverkfærisins skera ekki í gegnum og
losið skurðarverkfærið með því að snúa því
réttsælis.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja kjarnahrein
-
sibúnað.
LAUSN: Notið skrúflykil til að losa kjarnahrein
-
sibúnaðinn með því að snúa honum réttsælis.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
UM HALLDE RG-200
VÉL: Mótor: 0,25 kW, 230 V, einfasa, 50 Hz,
með hitastýrðri mótorvörn. Aflyfirfærsla: gírar.
Öryggiskerfi: Tveir öryggisrofar: Varnarflokkur:
IP44. Rafmagnsinnstunga: Jarðtengd, einfasa,
10 A. Öryggi í töfluskáp á staðnum. 10 A, slow-
blow. Hljóðvist LpA (EN31201): 73 dBA.
VERKFÆRI: Þvermál: 185 mm. Hraði: 350
sn./mín.
NETTÓÞYNGD: Vél: 18 kíló. Skurðarverkfæri:
U.þ.b. 0,5 kíló að meðaltali.
STAÐLAR: NSF-STAÐALL 8, sjá samræmi
-
syfirlýsingu.