61
IS
UMHIRÐA OG HREINGERNING
Áður en þú byrjar að hreinsa ísskápinn, skaltu aftengja tækið frá innstungunni.
Notaðu hreinan svamp og ekki-hrjúfan, mildan uppþvottalög blönduðum heitu vatni. Ekki nota
hrjúf né sterk hreinsiefni. Hreinsaðu alla fleti með höndunum, skolaðu og þurrkaðu varlega.
Ekki nota hreinsivax, óblönduð hreinsiefni, bleikiefni eða hreinsiefni sem innihalda olíu, á plast
eða litla gúmmíhluta.
Notaðu aldrei pappírsþurrkur, rúðuhreinsiefni, skúringarefni eða eldfiman vökva á plasthluti, þar
sem slík efni geta rispað eða skemmt þá.
Hreinsaðu með klúti sem dýft hefur verið í uppþvottalögsblönduna og þurrkaðu síðan niður með
mjúkum klút.
ENDURVINNSLA
Þessi vara inniheldur kæliefni af gerð R600a.
Þegar endingartíma vörunnar er lokið má ekki losa hana með öðru
heimilissorpi. Varan inniheldur verðmæt efni sem hægt er að endurvinna.
Þess vegna skal afhenda vöruna til endurvinnslu þegar hún hefur runnið sitt
skeið á enda. Ef þú kaupir nýja vöru í staðinn, þá er hægt að skila tækinu á
sölustað eða á sorplosunarstað fyrir raftæki á endurvinnslustöð umdæmisins.
Ekki losa sorp ólöglega. Skaðleg efni geta síast inn í grunnvatn og að lokum
endað í drykkjarvatni.
LANGTÍMAGEYMSLA
Ef þú ætlar ekki að nota tækið í langan tíma:
Aftengdu ísskápinn frá rafstraumi með því að fjarlægja klónna úr vegginnstungunni. Hreinsaðu
og þurrkaðu niður innra rými ísskápsins samkvæmt leiðbeiningum í Umhirðu og Hreingerningar
kaflanum. Skildu hurðina eftir opna til að koma í veg fyrir að ólykt myndist meðan að ísskápurinn
er ekki í notkun.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Ísskápur
Elvita CKF2852V
Elvita CKS2852V & CKS2852X
Samtals innra rúmmál
113 lítrar
130 lítrar
Frystihólf
Já
–
Breidd
553 mm
553 mm
Dýpt
574 mm
574 mm
Hæð
845 mm
845 mm
Þyngd
31 kg
30,5 kg
Rafmagnstenging
220–240 V 50 Hz
220–240 V 50 Hz
Kæliefni
R600a
R600a
Ráðlagður stofuhiti
16–32°C
16–32°C
Содержание CKF2852V
Страница 7: ...7 SE Modell Elvita CKF2852V Modell Elvita CKS2852V CKS2852X...
Страница 17: ...17 NO Modell Elvita CKF2852V Modell Elvita CKS2852V CKS2852X...
Страница 27: ...27 GB Model Elvita CKF2852V Model Elvita CKS2852V CKS2852X...
Страница 37: ...37 DK Model Elvita CKF2852V Model Elvita CKS2852V CKS2852X...
Страница 47: ...47 FI Malli Elvita CKF2852V Malli Elvita CKS2852V CKS2852X...
Страница 57: ...57 IS Ger Elvita CKF2852V Ger Elvita CKS2852V CKS2852X...