i
Fyrir notkun
Athugið gashæðarmælinn og umfang afhendingar
Rafhlöður settar í / skipt út
Öryggisviðvaranir fyrir rafhlöður
Öryggisleiðbeiningar fyrir meðhöndlun gaskúta
-
Ef gashæðarmælirinn verður ekki notaður í langan tíma skal
fjarlægja rafhlöðurnar því annars gætu þær byrjað að leka.
-
Reynið ekki að endurhlaða rafhlöður sem eru ekki
endurhlaðanlegar. Hætta er á sprengingu.
-
Gangið úr skugga um að rafskautin snúi rétt þegar sett er í.
Hætta á skemmdum.
-
Fjarlægið tómar rafhlöður tafarlaust úr tækinu. Mikil hætta er á
leka.
-
Ekki skal farga rafhlöðum með heimilisúrgangi. Sjáið
leiðbeiningarnar í kaflanum „Förgun“ varðandi þetta.
-
Haldið rafhlöðum frá börnum.
-
Fleygið rafhlöðum ekki á eld. Hætta er á sprengingu.
-
Látið rafhlöður ekki verða fyrir skammhlaupi og takið þær ekki í
sundur. Annars er hætta á meiðslum eða skemmdum.
-
Notið hlífðarhanska til að fjarlægja rafhlöður sem hafa lekið
þannig að sýra sem hefur lekið skaði ekki hendurnar.
-
Forðist snertingu við húð, augu og slímhimnur. Í tilfelli snertingar
við rafhlöðusýru skal hreinsa svæðið vandlega með hreinu vatni
og hafa tafarlaust samband við lækni.
-
Geymið gaskúta þar sem þeir eru ekki í beinu sólarljósi á
öruggum, svölum og þurrum stað, þar sem börn ná ekki til.
Geymið gaskúta aldrei innandyra eða neðanjarðar.
-
Áður en gashæðarmælirinn er notaður skal tryggja að
gaskúturinn sé rétt lokaður og gas sé ekki til staðar í loftinu
umhverfis. Hætta er á sprengingu.
-
Takið gashæðarmælinn og fylgihlutina úr umbúðunum.
-
Athugið hvort allt fylgi með í afhendingunni (sjá kaflann „Umfang
afhendingar / lýsing hluta“).
-
Athugið hvort gashæðarmælirinn eða fylgihlutirnir séu skemmdir.
-
Notið ekki gashæðarmælinn ef hann er skemmdur eða það
vantar hluti í hann. Hafið samband við framleiðandann.
Gerið samkvæmt eftirfarandi til að setja í eða skipta um rafhlöðu:
-
Losið rafhlöðuhlífina
3
með stjörnuskrúfjárni og opnið hana.
-
Ef nauðsynlegt er skal fjarlægja notuðu rafhlöðuna og farga
henni á umhverfisvænan hátt.
-
Setjið nýja rafhlöðu í. Gætið að því að rafskautin snúi rétt.
-
Setjið rafhlöðuhlífina aftur í og lokið henni með stjörnuskrúfjárni.
högg. Aldrei
-
missa gashæðarmælinn.
-
Til að hindra skemmdir og villur skal aldrei taka
gashæðarmælinn í sundur.
-
Geymið gashæðarmælinn á hreinum og þurrum stað.
-
Látið gashæðarmælinn ekki vera berskjaldaðan fyrir vatni,
óhreinindum og ryki.
-
Geymið gashæðarmælinn þar sem börn ná ekki til.
1500003369_Anleitung.indb 51
1500003369_Anleitung.indb 51
20.12.2019 13:20:44
20.12.2019 13:20:44