62
Hefjast handa - ÍSLENSKA
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
Ofngrind
Til að grilla eða steikja mat sem er annaðhvort settur beint á grindina eða í
bökunarfat. Ofngrindin hefur upplyfta aftari brún til að tryggja að matur renni ekki af
þegar þú fjarlægir grindina úr ofninum.
Hitamælir
Til að mæla innra hitastig matar við eldun.
Steikarteinn snúningsgrills með
vírgrind
Fyrir jafna steikingu stórra kjötstykkja og fuglakjöts.
Kælivifta
Ofninn þinn er með kæliviftu. Það kviknar á kæliviftunni við notkun. Heita loftið sleppur út fyrir ofan hurðina. Kæliviftan
heldur áfram að ganga í ákveðinn tíma eftir notkun.
Fyrir fyrstu notkun
Stilltu tímann
Þegar þú tengir ofninn í fyrsta sinn við rafmagn verður þú beðin(n) um að stilla tímann.
1.
Snertu
.
Tölustafurinn fyrir klukkustund byrjar að blikka.
2.
Snúðu
til núverandi klukkustundar.
3.
Snertu
aftur.
Tölustafurinn fyrir mínútu byrjar að blikka.
4.
Snúðu
til núverandi mínútu.
5.
Snertu
aftur.
Tíminn er nú stilltur.
Ofninn hitaður í fyrsta sinn
Hitaðu ofninn án matar til að losna við lyktina sem fylgir nýjum ofni.
VIÐVÖRUN!
Gangið úr skugga um að allar leifar umbúða hafi verið fjarlægðar úr eldunarrýminu.
1.
Snúðu
til
.
2.
Snúðu
til 250 °C.
3.
Snertu
til að ræsa ofninn.
4.
Snúðu
til 90 mínútna og snertu
innan 3 sekúndna til að staðfesta.
Ofninn byrjar að hita upp og slekkur á sér eftir 90 mínútur.
Við þessa upphaflegu notkun er fullkomlega eðlilegt að það komi smávegis reykur og lykt. Ef þetta gerist þarftu
einfaldlega að bíða þar til lyktin hverfur áður en matur er settur í ofninn.
Ofnaðgerðir
Ofnljós
Gerir þér kleift að fylgjast með framvindu eldunar án þess að opna hurðina. Ofnljósið kviknar sjálfkrafa fyrir
allar ofnaðgerðir nema sparaðgerðina og aðgerðina fyrir hreinsun með hitasundrun.