Öryggi - ÍSLENSKA
59
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
Öryggi við viðhald
VIÐVÖRUN!
•
Ef rafmagnssnúran er skemmd verður henni að vera skipt út af framleiðandanum, þjónustuaðila hans eða
sambærilega hæfum einstaklingum til að forðast hættur.
•
Bíðið eftir að ofninn kólni niður eða notið hlífar þegar gömul ljósapera er fjarlægð til að forðast að
brennast.
•
Tryggið að slökkt sé á ofninum áður en sett er ný pera til að forðast mögulegt raflosti.
•
Þegar ofnhurðin er fjarlægð eða sett upp gætu fjaðrir hjaranna losnað og valdið líkamstjóni.
VARÚÐ!
•
Notið ekki gufuhreinsa.
•
Notið ekki gróf svarfandi hreinsiefni eða oddhvassar sköfur úr málmi til að hreinsa gler ofnhurðarinnar þar
sem það getur rispað yfirborðið, sem getur leitt til þess að glerið splundrist.
•
Togið hurðina ekki út með því að beita afli. Glerið gæti brotnað.
•
Ekki lyfta eða bera ofnhurðina með hurðarhandfanginu.
Förgun
Fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands
og staðar er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.
Þetta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindatækjaúrgangur
(WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum þess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem
heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og
rafeindatækjaúrgangs.
Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar
fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs
vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við
viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorpþjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir
tækið.