IS
32
CHB2351X
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Lestu þessar notkunarleiðbeiningar vandlega
áður en blandarinn er tekinn í notkun. Geymdu
notkunarleiðbeiningarnar til framtíðarbrúks síðar meir
til að koma í veg fyrir ranga notkun eða líkamsskaða.
Varan Blandari CHB2351X verður í textanum sem á
eftir kemur kölluð „tækið“.
ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
• Tækið má eingöngu tengja við jarðtengda innstungu
með rafspennu upp á 220–240 V 50/60 Hz.
• EKKI skilja börn eftir án eftirlits nálægt tækinu.
• Börn frá 8 ára aldri og einstaklingar með skerta
líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu eða sem
skortir reynslu og þekkingu geta notað tækið, ef
þau eru undir eftirliti eða fá leiðbeiningar um örugga
notkun tækisins og skilji þær áhættur sem í henni
felst. Börn mega ekki hreinsa eða sinna viðhaldi á
tækinu án eftirlits.
• Staðsetja skal tækið á sléttum, þurrum fleti innandyra
og fjarri hitagjöfum.
• Ekki dýfa tækinu ofan í vatn eða svipaða vökva, t.d.
þegar verið er að þvo það.
• Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka tækið
úr sambandi við rafmagn þar sem það getur
skemmt snúruna; taktu í klóna þegar þú tekur
það úr sambandi. Ef einhverjar skemmdir eru á
rafmagnssnúrunni eða tækinu má alls ekki nota
það heldur skal láta gera við það á viðurkenndu
þjónustuverkstæði.
• Ef tækið er notað í öðrum tilgangi en það er ætlað
fyrir, eða ef það er notað án þess að farið sé eftir
notkunarleiðbeiningunum þá er notandinn ábyrgur