135
Microlife BP W1 Basic
IS
Geymið tækið þar sem börn og aðrir sem ekki geta nota tækið
með réttum hætti ná ekki til. Gætið þess að litlir hlutir séu ekki
gleyptir og að snúrur og slöngur tækisins og aukabúnaðar vefjist
ekki um háls einstaklinga.
m
VARÚÐ
Gefur til kynna hugsanlega hættulegar aðstæður sem kunna að
valda vægum eða meðalalvarlegum áverkum hjá notanda eða
sjúklingi, eða geta valdið skemmdum á búnaðinum sjálfum eða
öðrum hlutum ef varúðar er ekki gætt.
Tækið er eingöngu ætlað til að mæla blóðþrýsting við úlnlið. Ekki
má nota tækið til blóðþrýstingsmælinga á öðrum stöðum líkamans
því slíkar mælingar eru ekki marktækar.
Að mælingu lokinni skal losa um mansettuna og hvílast í
> 5 mínútur til að fá fram eðlilegt blóðflæði á ný áður en önnur
mæling er tekin.
Ekki má nota tækið samtímis öðrum rafrænum lækningatækjum.
Það getur valdið því að tækið virki ekki sem skyldi eða að
mælingar verði rangar.
Ekki má nota þetta tæki nálægt hátíðnibúnaði til skurðlækninga,
segulómunarbúnaði (MRI) eða sneiðmyndabúnaði (CT). Það
getur valdið því að tækið virki ekki sem skyldi og að mælingar
verði rangar.
Geymið og notið tækið, mansettuna og aðra hluta þess við það
hita- og rakastig sem fram kemur í «Tæknilýsing». Ef tækið,
mansettan eða aðrir hlutar þess eru notaðir og geymdir utan þeirra
marka hita- og rakastigs sem tilgreind eru í «Tæknilýsing» getur
það valdið bilunum í tækinu og dregið úr öryggi við notkun þess.
Til að varna skemmdum skal verja tækið og aukabúnað þess gegn
eftirfarandi:
- vatni, öðrum vökum og raka
- miklum sveiflum í hitastigi
- höggi og titringi
- sólarljósi
- mengun og ryki
Ef notandi finnur fyrir húðertingu eða óþægindum skal hætta að
nota tækið og mansettuna og leita ráða hjá lækni.
Upplýsingar um rafsegulsviðssamhæfi
Þetta tæki uppfyllir kröfur um rafsegultruflanir sem fram koma í stað-
linum EN60601-1-2: 2015.
Þetta tæki er ekki samþykkt til notkunar nálægt hátíðnibúnaði sem
notaður er til lækninga.
Ekki má nota þetta tæki nálægt tækjum sem gefa frá sér öflugar
rafsegulbylgjur eða fjarskiptabylgur (t.d. örbylgjuofnum eða
farsímum). Þegar þetta tæki er í notkun skal halda að minnsta kosti
0.3 m fjarlægð frá slíkum tækjum.
Содержание BP W1 Basic
Страница 140: ...138 ...