87
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
VIÐHALD FRYSTIS
HREINGERNING
• Áður en þú byrjar að hreinsa frystinn, skaltu aftengja klóna frá innstungunni.
• Hreinsaðu með volgu vatni og þurrkaðu síðan af með mjúkum klút.
• Þéttilistar hurðar verða auðveldlega óhreinir. Óhreinindalög geta safnast upp. Hreinsaðu
oft.
Ekki skola af með vatni þar sem slíkt getur veikt einangrunina á rafmagninu. Notaðu þurran
klút til að hreinsa hitastigssnerilinn og rafmagnshluti.
AFÞÍÐING
Handvirk afþíðing frystisins. Aftengdu frystinn frá rafmagni. Áður en afþíðing fer fram skaltu
opna frystihurðina og fjarlægja matvæli og ílát. Opnaðu fyrir útrennslisgöt/frárennslisgöt. Settu
vatnsílát undir frárennslisgatinu. Klakinn í frystinum mun smám saman þiðna. Notaðu þurran,
mjúkan klút til að hreinsa upp leysingavatnið. Þegar klakinn hefur þiðnað að hluta er hægt
að nota íssköfu til að hreinsa út klakann fljótar. Áður en þú fjarlægir aukabúnað frystisins og
meðan á afþíðingu stendur skaltu setja og geyma matvælin á kaldan stað.
Ekki nota nein vélknúin tæki eða aðrar vörur til að hraða fyrir afþíðingu, annað en það sem
framleiðandinn ráðleggur að nota. Skemmið ekki kælikerfið.
SLÖKKVA Á
Ef rafmagnslaust verður, geymast matvæli fryst áfram í nokkrar klukkustundir, jafnvel þó að
sumarlagi sé. Ef rafmagnslaust verður skaltu opna frystihurðina eins sjaldan og mögulegt er
og ekki bæta við neinum ófrystum matvælum í frystinn.
Fyrir hreinsun sem og í því tilfelli að ekki skal nota frystinn til lengri tíma skaltu aftengja klóna frá
innstungunni. Þá skaltu skilja eftir hurðina eilítið opna til að koma í veg fyrir ólykt.
Ekki leggja frystinn á neinar hliðar sínar né hvolfa honum. Mesti leyfilegur halli við flutning er
45°. Frystirinn má ekki verða fyrir titringi. Gakktu tryggilega frá hurðum og hjörum þegar þú
færir frystinn.
Við mælum með að leyfa frystinum að vera stöðugt í gangi þegar einu sinni hefur verið kveikt
á honum. Meðan ástand er eðlilegt skaltu ekki hreyfa hann. Slíkt getur stytt endingartímann
á frystinum.