36
FYRIRHUGUÐ NOTKUN
■
Þetta gasgrill er ætlað til að matreiða matvæli sem má
grilla. Það gengur fyrir fljótandi gasi og er ætlað til notkunar
utandyra.
■
Önnur notkun er óheimil. Það á einkum við um eftirfarandi
rangnotkun sem sjá má fyrir:
○
Ekki má brenna viði, viðarkolum eða hvers kyns eldsneyti
öðru en fljótandi gasi (própani/ bútani) í grillinu.
○
Alls ekki má tengja grillið við jarðgasveitu (gasveitu
sveitarfélags)! Lokarnir og stútarnir eru eingöngu ætlaðir
fyrir kúta með fljótandi gasi.
○
Ekki má nota grillið sem kyndingu.
○
Ekki má nota grillið til að hita upp aðra hluti en matvæli.
○
Grillið má alls ekki vera innbyggt.
■
Notkun og geymsla á grillinu og gaskútnum verður að vera í
samræmi við gildandi reglur.
■
Grillið er ekki ætlað til notkunar í atvinnuskyni, heldur
eingöngu til einkanota.
■
Aðeins má nota grillið í fyrirhuguðum tilgangi og eingöngu
með þeim hætti sem lýst er í þessum uppsetningar- og
notkunarleiðbeiningum. Öll önnur notkun telst vera röng.
Röng notkun og óviðeigandi meðhöndlun geta haft neikvæð
áhrif á virkni eða valdið tjóni eða slysum.
■
Ábyrgðin nær ekki yfir ágalla sem rekja má til rangrar
meðhöndlunar, skemmda eða viðgerðatilrauna. Það gildir
einnig um eðlilegt slit, fituuppsöfnun og upplitun á grillinu og
fylgihlutum þess.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Slysahætta
■
Börn og einstaklingar með skerta líkamsgetu, skyngetu eða
andlega getu eða sem skortir reynslu og/eða þekkingu skulu
ekki nota grillið.
■
Börn mega ekki leika sér með grillið. Gæta skal þess að börn
séu ekki eftirlitslaus við grillið, jafnvel þótt slökkt sé á því.
Röng notkun getur verið hættuleg.
■
VIÐVÖRUN: Aðgengilegir hlutir geta verið mjög heitir.
Halda skal börnum fjarri!
Aldrei má skilja grillið eftir án
eftirlits þegar það er í notkun eða enn heitt. Einkum verður að
gæta þess að börn eða einstaklingar sem eru ekki færir um að
meta eða bregðast við hættu á réttan hátt komist of nálægt
heitu grillinu.
■
Nota skal grillhanska sem uppfylla kröfur reglugerðar
(ESB) 2016/425 um persónuhlífar samkvæmt DIN EN 407
(hitavarnarflokkur II).
■
Ekki má koma við heita hluta grillsins meðan á notkun þess
stendur og eftir að henni lýkur! Aðeins má koma við handföng
og stillihnappa á meðan grillið er í notkun og strax eftir að
slökkt hefur verið á því. Leyfa skal grillinu að kólna áður en
það er flutt, þrifið eða sett í geymslu.
■
Ekki má færa grillið úr stað á meðan það er í gangi!
■
Neysla áfengis eða lyfja getur haft neikvæð áhrif á getu til
að setja grillið saman, færa það, geyma það eða nota það á
réttan og öruggan hátt.
Köfnunar-, eld- og sprengihætta
Gas er mjög eldfimt og brennur líkt og við sprengingu. Ef
það kviknar í gasi sem streymir út með stjórnlausum hætti
getur það valdið alvarlegum slysum eða tjóni.
Fljótandi gas er þyngra en súrefni. Það safnast því upp við
jörðu og ryður súrefni þar í burtu. Ef tiltekið magn af gasi
safnast upp (t.d. ef gaskúturinn er skemmdur) getur það
valdið köfnun vegna súrefnisskorts.
■
Aðeins skal nota gastegundir, gaskúta, þrýstijafnara og
gasslöngur sem fjallað er um í þessum uppsetningar- og
notkunarleiðbeiningum (sjá kaflann „Kröfur til íhluta sem leiða
gas“).
■
Aðeins má nota grillið yfir yfirborði jarðar (þ.e. ekki í lægðum
undir yfirborði jarðar).
■
Notist eingöngu utandyra.
Ekki má nota grillið inni í
byggingum, bílskúrum, bílageymslum, undirgöngum, tjöldum,
öðrum lokuðum rýmum, undir markísum eða eldfimum
mannvirkjum.
■
Ekki má nota grillið í eða á ökutæki. Þetta á einnig við um
húsbíla, hjólhýsi og báta.
■
Ekki má nota grillið ef eldfim eða sprengifim efni eru í
andrúmslofti eða umhverfinu. Ekki má geyma eldsneyti eða
aðrar eldfimar gufur eða vökva nálægt grillinu og ekki má
nota slík efni með grillinu. Ekki má úða úr úðabrúsum nálægt
grillinu.
■
Aldrei má nota grillið án þrýstijafnara (sjá kaflann „Kröfur til
íhluta sem leiða gas“ – „Þrýstijafnari“)!
■
Ganga skal úr skugga um að þrýstijafnarinn sé rétt tengdur,
virki rétt og sé óskemmdur.
■
Í hvert skipti sem gaskútur er tengdur eða þegar grillið hefur
staðið ónotað í lengri tíma skal framkvæma lekaprófun á
öllum íhlutum sem gas fer um (sjá kaflann „Lekaprófun“).
Ef
gasleki kemur upp má ekki nota grillið.
■
Grillið má ekki vera nálægt brennanlegum efnum þegar
það er í notkun.
Hætta er á eldi og glóðarbruna. Halda
verður eftirfarandi lágmarksfjarlægð frá eldfimu efni: 2 m fyrir
ofan og 1 m til hliðar við grillið. Fjarlægð frá mjög eldfimu
efni, t.d. húsveggjum, skal vera að minnsta kosti 0,6 m.
Á meðan kveikt er á grillinu má hvorki geyma yfirbreiðsluna né
annað eldfimt efni í skápnum.
■
Þegar gaskútur er tengdur mega engir íkveikjuvaldar vera í innan
við 5 m fjarlægð frá grillinu, einkum enginn opinn eldur eða
logandi sígarettur, kerti, ljósaperur o.s.frv. Einnig getur stafað
hætta af raftækjum ef gas streymir út þegar kúturinn er tengdur.
■
Aldrei má loka fyrir loftopin á grilleiningunni og í rýminu fyrir
gaskútinn og sjá verður til þess að aldrei sé neitt fyrir þeim.
■
Ekki má setja neitt fyrir op á grillinu og ganga verður úr
skugga um að þau séu ekki stífluð áður en kveikt er upp í
grillinu. Líkt og gildir um flest tæki sem notuð eru utandyra
getur grillið boðið upp á skjól fyrir kóngulær og skordýr. Stíflur
í íhlutum sem gas fer um geta hindrað gasflæðið og dregið
þannig úr afköstum eða jafnvel valdið hættulegum eldblossa.
Fjarlægja skal stíflur samkvæmt leiðbeiningunum í kaflanum
„Þrif og viðhald“.
■
Aldrei má skilja grillið eftir án eftirlits þegar það er í notkun. Ef
logi slokknar skal kveikja strax aftur á honum eða skrúfa fyrir
gaskútinn.
■
Ef vart verður við gaslykt skal skrúfa fyrir gaskútinn og
slökkva alla loga. Ekki kveikja á raftækjum. Finna verður
orsök gaslekans og lagfæra hann áður en kveikt er aftur upp
í grillinu.
■
Gæta verður þess að olía og feit matvæli ofhitni ekki. Ekki má
setja ílát með olíu á grillið.
■
Ef eldur kemur upp í fitu má ekki reyna að slökkva hann með
vatni! Skal strax skrúfa fyrir gasið á gaskútnum. Slökkva skal
strax á öllum brennurunum og hafa lokið á þar til eldurinn er
slokknaður.
■
Eftir notkun skal strax skrúfa fyrir gasið á gaskútnum.
■
Leyfa verður grillinu að kólna áður en yfirbreiðslan er sett á það.
■
Ekki má breyta grillinu með neinum hætti!
Allar breytingar
á grillinu geta verið hættulegar.
■
Ekki má eiga við hluta sem hafa verið innsiglaðir af
framleiðanda eða aðila á hans vegum.
■
Af öryggisástæðum mega eingöngu framleiðandi
eða þjónustuaðili á hans vegum annast viðgerðir.
Ef
vart verður við skemmdir eða ef bilun kemur upp skal hafa
samband við þjónustuaðila (sjá kápu þessara uppsetningar- og
notkunarleiðbeininga). Ekki má nota grillið fyrr en það hefur
verið lagfært, því annars er aukin hætta á slysum.
IS
REX41_MOD_Inlay_LM_M_A4_SCA_V1.indb 36
REX41_MOD_Inlay_LM_M_A4_SCA_V1.indb 36
08.11.2022 18:45:55
08.11.2022 18:45:55