10
Íslensk
a
Gaumljós leiftra sitt á hvað.
Blandarinn getur verið fastur. Ef hann er
fastur slekkur blandarinn á sér til að koma í
veg fyrir skemmdir á mótornum. Ýttu á “O”
til að endurstilla blandarann. Taktu könnuna
af undirstöðunni og losaðu blöðin með því
að brjóta upp eða fjarlægja innihaldið á
botni könnunnar.
Bilanaleit
Blandarinn virkar ekki þegar stilling er valin:
Ekkert gaumljós logar.
Athugaðu hvort blandarinn er í sambandi við
jarðtengda innstungu. Ef svo er, ýttu á “O” og
taktu síðan blandarann úr sambandi. Settu
hann aftur í samband við sömu innstungu.
Ef blandarinn virkar ekki enn skal athuga með
öryggi eða útsláttarrofa á rafmagnstöflunni
sem blandarinn er tengdur við og ganga úr
skugga um hvort rásin sé lokuð.
Blandarinn stöðvast við blöndun:
Öll gaumljós leiftra um leið.
Blandarinn getur verið ofhlaðinn. Ef
blandarinn verður ofhlaðinn þegar verið
er að blanda þung hráefni slekkur hann
sjálfvirkt á sér til að koma í veg fyrir skemmdir
á mótornum. Ýttu á “O” til að endurstilla
blandarann. Taktu könnuna af mótorhúsinu
og skiptu innihaldi könnunnar niður í smærri
skammta. Ef vökva er bætt í krukkuna getur
það einnig dregið úr álagi á blandarann.
Ef ekki er hægt að laga vandamálið með þeim skrefum sem boðið er upp á í þessum kafla skal
hafa samband við viðurkennda þjónustumiðstöð (sjá blaðsíðu 17).
Ekki fara með blandarann aftur til söluaðila – þeir veita ekki þjónustu.