Hefjast handa - ÍSLENSKA
85
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
Heitt loft
Notið þessa ofnstillingu til að steikja kjöt eða baka bakkelsi á nokkrum hæðum á sama tíma. Hringhitarinn
og viftan tryggja að það er stöðug hringrás lofts í kringum matinn. Ráðlagt hitastig: 180 °C.
Heitt loft og botnhitari
Notið þessa ofnstillingu til að baka:
•
pítsur
•
epplakökur
•
ávaxtakökur
•
rakt bakkelsi
•
hefað deig
•
bakkelsi með skorpu
Botnhitarinn, hringhitarinn og viftan tryggja að það er stöðug hringrás lofts í kringum matinn. Ráðlagt
hitastig: 200 °C.
Mildur bakstur
Notið þessa ofnstillingu til að steikja kjöt, elda fisk eða baka bakkelsi á einni grind. Hún veitir mildan, hægan
og jafnan bakstur sem gerir matinn mjúkan og safaríkan. Ráðlagt hitastig: 180 °C.
Afþíða
Notið þessa ofnstillingu til að afþíða mat eins og:
•
kökur með miklu kremi eða kremi sem gert er úr smjöri
•
kökur og bakkelsi
•
brauð og rúnnstykki
•
djúpfrysta ávexti
Í flestum tilfellum skal fjarlægja matinn úr umbúðunum.
ATHUGIÐ!
Fjarlægið öll höld og klemmur úr málmi.
Snúið við, hrærið í og aðskiljið stykki sem eru frosin saman þegar afþíðingartíminn er hálfnaður.
Í afþíðingarstillingu streymir viftan loftinu án þess að neinn hitari sé virkur. Þetta er notað til að þíða frosin
mat hægt.
Vatnshreinsun
Notið þessa ofnstillingu til að fjarlægja bletti og matarleifar úr ofninum. Aðeins botnhitarinn geislar hita.
Kerfið tekur 30 mínútur. Ráðlagt hitastig: 70 °C.
Содержание CIS56231V
Страница 30: ...30 Komma ig ng SVENSKA 2021 Elon Group AB All rights reserved...
Страница 44: ...44 Komme i gang NORSK 2021 Elon Group AB All rights reserved...
Страница 58: ...58 Kom i gang DANSK 2021 Elon Group AB All rights reserved...
Страница 72: ...72 Aloittaminen SUOMI 2021 Elon Group AB All rights reserved...
Страница 86: ...86 Hefjast handa SLENSKA 2021 Elon Group AB All rights reserved...