47
IS
3. NOTKUN TÆKISINS
(Myndirnar að neðan eru eingöngu ætlaðar til útskýringar og geta því verið eilítið frábrugð-
nar í útliti frá vörunni þinni.)
FYRSTU SKREFIN
1. Settu slönguna í inntökuhólkinn að framan á ryksugunni, ýttu henni inn í
slöngustæðið og snúðu réttsælis til að festa hana tryggilega (Mynd 1).
2. Settu sundurdraganlegt rörið inn í handfangshólkinn (Mynd 2).
3. Festu á viðeigandi stút fyrir verkið. Samsettur stútur fyrir teppi eða gólf
(val á stillingu eftir undirlagi) (Myndir 3 og 4); burstastútur fyrir sófa, veggi,
gluggatjöld, horn, o.fl.; flatur stútur fyrir þröng svæði (Mynd 5).
4. Settu ryksuguna í gang: tengdu rafmagnssnúruna í vegginnstunguna og
ýttu á aflrofann (Mynd 6).
5. Til að vinda upp snúrunni, skaltu halda niðri takkanum sem merktur er með
tákni af kló (Mynd 7).
6. Gólfstútinn er hægt að geyma á króknum aftarlega á ryksugunni þegar
ryksugan er ekki í notkun (Mynd 8). Það er líka krókur neðan á ryksugunni til
að gera kleift upprétta geymslu á tækinu.