IS
IS
149
Að nota uppþvottavélina
Stjórnborð
Notkun (hnappar)
1
Ræsihnappur
Þrýstu á hnappinn til að setja vélina í gang (skjárinn lýsist upp).
2 1/2 (hálffull uppþvottavél)
Þegar þvo á borðbúnað fyrir sjö að hámarki má nota stillinguna
1/2 (hálffull uppþvottavél). Með þessari stillingu sparast bæði
vatn og orka (virkar eingöngu með þvottakerfunum Kröftugt,
ECO og 90 mín.) (þegar þrýst er á hnappinn kviknar á
gátljósinu).
3 Seinkuð ræsing
Sýnir tíma seinkaðrar ræsingar(3 klst., 6 klst., 9 klst.).
4 Barnalæsing
Þrýstu á hnappinn til að læsa hnöppum stjórnborðsins (öllum
nema ræsihnappnum) svo börn geti ekki sett uppþvottavélina í
gang.
Læstu eða aflæstu hnöppunum á stjórnborðinu með því að
halda hnöppunum Seinkuð ræsing og 1/2 (hálffull uppþvottavél)
samtímis niðri í 3 sekúndur (þegar þrýst er á hnappinn kviknar
á gátljósinu).
5 Þvottakerfi
Þrýstu á hnappinn til að velja þvottakerfi (það kviknar á gátljósi
viðkomandi kerfis).
6 Aukaþurrkun
Þrýstu á hnappinn til að fá skraufþurran uppþvott
(þegar þrýst er á hnappinn kviknar á gátljósinu).
7 Start/hlé
Þrýstu á hnappinn til að velja þvottakerfi eða setja það á hlé.
1
2 4 3 8
9
10
5
6
7