![DBI SALA ROLLGLISS R550 Скачать руководство пользователя страница 240](http://html.mh-extra.com/html/dbi-sala/rollgliss-r550/rollgliss-r550_user-instruction-manual_516450240.webp)
240
;
Fyrir uppsetningu og notkun búnaðarins skal skrá auðkennisupplýsingar búnaðarins sem eru á auðkennismerkingunni í
Eftirlits- og viðhaldsskrá (Tafla 2) á bakhlið þessarar handbókar.
VÖRULÝSING:
Mynd 1 sýnir búnaðinn sem fylgir með 3M™ Rollgliss™ R550-björgunarkerfi fyrir slys af völdum olíu og gastegunda.
R550-björgunarkerfi er björgunarsett sem inniheldur allan nauðsynlegan búnað til björgunar á vinnusvæði. R550-björgunarkerfið
er ætlað til að láta einn til tvo einstaklinga síga samtímis úr mikilli hæð í minni hæð við björgun.
Myndir 2 til 8 sýna íhluti R550-björgunarkerfi fyrir slys af völdum olíu og gastegunda. Tæknilegar upplýsingar íhluta fyrir alla
hluta búnaðarins má finna í Tafla 1. R550-björgunarkerfi fyrir slys af völdum olíu og gastegunda samanstendur af:
•
R550 björgunar- og flutningsbúnaði (mynd 2) sem notaður er við björgunaraðgerðina sjálfa;
•
fjórum björgunarólum (mynd 3) til að framlengja öryggislínuna;
•
tjóðurlínu fyrir verkfæri (mynd 4) til að tryggja öryggi verkfæra sem haldið er á;
•
gripbúnaði fyrir björgunarlínu (mynd 5) og gripbúnaði fyrir björgunarnet (mynd 6) til að festa við öryggislínu eða
öryggisnet;
•
kantvörn (mynd 7) til að verja öryggislínuna ef hún þarf að hanga yfir skarpa brún eða hvasst horn
•
og míkrótrissu (mynd 8) til að stýra stefnu öryggislínunnar.
Table 1 – Tæknilýsing
Tæknilýsing kerfis:
Afkastageta:
Afkastageta R550-björgunarkerfi fyrir slys af völdum olíu og gastegunda fer eftir fjölda notenda,
heildarþyngd notenda, vegalengdinni sem um ræðir og fjölda þeirra skipta sem búnaðurinn hefur
áður verið notaður í hámarks sigvegalengd.
Notendur
Heildarþyngd
(ásamt verkfærum,
fatnaði o.s.frv.)
Hámarks
sigvegalengd
Fjöldi siga með
hámarks sigvegalengd
2 einstaklingar 60 kg - 282 kg
175 m
2
1 einstaklingur 60 kg - 141 kg
500 m
11
1 einstaklingur 60 kg - 100 kg
500 m
15
1 einstaklingur 60 kg - 75 kg
500 m
22
Hámarks ráðlögð
lyftigeta og hæð
1 einstaklingur: 141 kg í 100 metra
2 einstaklingar: 282 kg, aðeins í stutta vegalend, og aðeins til
björgunar.
Styrkur festingar:
Staðurinn sem R550-björgunarkerfi fyrir slys af völdum olíu og gastegunda er fest við verður að þola
álag í fyrirhugaða álagsstefnu. Hver festipunktur verður að þola eftirfarandi gildi:
ANSI
3.000 pund (13,3 kN)
EN 795
12 kN (2.698 pund)
Þegar fleiri en einn R550-björgunarbúnaður er festur við festibúnað þarf að margfalda ofangreindan
styrk með fjölda sigbúnaðar sem festur er við viðkomandi festistað.
Hitastig við notkun
-40 °C (-40 °F)
Lágmarkshitastig við notkun
Brotstyrkur
tengibúnaðar á
festistað:
22 kN (5.000 pund)
Lágmarksbrotstyrkur
Staðlar:
Prófað í samræmi við EN 795:2012.
Mál:
Mál hvers hluta R550-björgunarkerfi fyrir slys af völdum olíu og gastegunda má sjá á myndum 2 til 8.
Þyngd:
Þyngd hvers hluta R550-björgunarkerfi fyrir slys af völdum olíu og gastegunda má sjá á myndum 2 til 8.
Содержание ROLLGLISS R550
Страница 5: ...5 9 10 A B C D E F G A B C 11 12 B C A A D B A E C A B ...
Страница 6: ...6 13 14 C B L A RH R A C RH RD RL 2777 8mm 16mm L E VL D 15 16 1 3 2 B A A C A B 2 3 1 ...
Страница 7: ...7 17 18 1 4 5 2 6 3 A B C C D D ...
Страница 8: ...8 19 20 A A B 1 2 3 A 1 2 3 4 ...
Страница 9: ...9 21 22 1 1 2 A B 1 2 3 B A A B A B B A C C ...
Страница 10: ...10 23 1 2 3 4 5 6 9 7 8 ...
Страница 11: ...11 24 1 2 3 4 5 6 7 8 9 ...
Страница 14: ...14 28 B J K L P Q R H G I A M N O F E D C G C E D A B F A F C D E B G ...
Страница 199: ...199 ...
Страница 567: ......