32
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Lestu neðangreindar öryggisleiðbeiningar og fylgdu öllum venjulegum varúðarreglum áður en þú
notar þessa vöru.
VIÐVÖRUN!
1. Vertu viss um að ryksugupokinn sé rétt settur á áður en þú notar vöruna í fyrsta skipti.
2. Aðeins til notkunar með 230 V / 50 Hz.
3. Ekki ryksuga vatn né eldfim efni.
4. Ekki ryksuga brennandi efni né ösku.
5. Ekki nota ryksuguna án vélvarnarsíunnar.
6. Skiptu strax um ryksugupoka ef hann er skemmdur.
7. Ekki geyma ryksuguna á stöðum þar sem hátt hitastig er fyrir hendi.
8. Ef ryksugan byrjar á að gefa frá sér óvenjuleg hljóð, byrjar að lykta, gefur frá sér reyk eða sjást á
henni merki um skemmdir eða galla, skaltu slökkva á henni strax og aftengja rafmagnssnúruna. Hafðu
síðan samband við viðgerðarmann. Ekki reyna að gera við tækið sjálf/ur.
9. Ef rafmagnssnúran er skemmd þá verður framleiðandinn eða viðgerðarmaður að gera við hana til
að koma í veg fyrir slys.
10. Hafa verður umsjón með börnum nálægt ryksugunni til að tryggja að þau leiki sér ekki með hana.
11. Taktu ryksuguna úr sambandi áður en þú skiptir um ryksugupoka eða heldur við tækinu.
12. Ekki aftengja ryksuguna með því að toga í rafmagnssnúruna. Slíkt getur leitt til áverka og rafstuðs.
13. Vöruna skal fara með á samþykktan söfnunarstað þegar hún er tilbúin til förgunar.
EFNISYFIRLIT
Öryggisleiðbeiningar
32
Samsetning ryksugunnar
33
Notkun vörunnar / Fyrstu skrefin
34
Viðhald 35
Bilanagreining 36
Tæknilegar upplýsingar 36