|
Wallbox eMH3 –
Hleðsla
162
9
Gætið að díóðuljósunum fyrir hleðslustaðinn
(framsetning: 1 lota).
y
Græna ljósdíóðan logar stöðugt á meðan
vegghleðslustöðin bíður eftir því að
rafbíllinn setji hleðsluna í gang.
y
Þegar bíllinn setur hleðsluna í gang blikkar
græna ljósdíóðan.
y
Þegar gert er hlé á hleðslunni eða henni
lýkur logar græna ljósdíóðan aftur stöðugt.
ATHUGIÐ
Hlé gert á hleðslunni eða hún stöðvuð
Bíllinn getur gert hlé á hleðslunni. Annars stöðvar bíllinn hleðsluna sjálfkrafa þegar henni er lokið.
Athugið hvaða upplýsingar koma fram í bílnum: Ef bíllinn er ekki fullhlaðinn þegar hleðslunni lýkur
getur þurft að láta skoða hann á verkstæði.
10
Takið hleðslusnúruna úr sambandi við
hleðslutengið á rafbílnum og lokið því.
11
Gangið frá hleðslusnúrunni fyrir næstu
hleðslu.
y
Vegghleðslustöð með hleðslusnúru
Gangið frá hleðsluklónni í festingunni.
y
Vegghleðslustöð með hleðslutengli
Dragið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
og gangið frá hleðslusnúrunni: Hleðslulokið
lokast sjálfkrafa.
12
Vegghleðslustöðin er tilbúin til notkunar og
bíður næstu hleðslu:
y
Þegar hleðslustaðurinn er tilbúinn fyrir
hleðslu blikkar bláa ljósdíóðan, en græna
og rauða ljósdíóðan loga ekki.