9
Íslensk
a
Umhirða og hreinsun
Auðvelt er að þrífa könnu og blað blandarans
án þess að taka í sundur.
• Hreinsaðu blandarann vandlega eftir
hverja notkun.
• Ekki setja mótorhús blandarans eða snúru
á kaf í vatn.
• Ekki nota hreinsiefni eða svampa sem geta
rispað.
1. Til að þrífa blaðið skal setja könnuna á
mótorhús blandarans, hálffylla hana af
volgu (ekki heitu) vatni og bæta út í
1 eða 2 dropum af uppþvottalegi. Settu
lokið á könnuna, ýttu á HRÆRA
(
)
hraðastillinguna og láttu blandarann
ganga í 5 til 10 sekúndur. Taktu könnuna
og tæmdu hana. Skolaðu könnuna með
volgu vatni þar til hún er hrein.
2. Til að þrífa lokið og mælihettuna skal
þvo það í volgu sápuvatni, síðan skola og
þurrka vandlega.
3. Þurrkaðu undirstöðu blandarans og snúru
með volgum sápuvættum klút, þurrkaðu
af með rökum klút og þurrkaðu með
mjúkum klút. Við geymslu er hægt að vefja
snúruna upp á snúrufestinguna á botni
undirstöðunnar.