24
25
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
ELVITA VATNSKETILL
Lestu þessar notkunarleiðbeiningar vandlega
áður en vatnsketillinn er tekinn í notkun. Geymdu
notkunarleiðbeiningarnar til framtíðarbrúks síðar
meir til að koma í veg fyrir ranga notkun eða
líkamsskaða.
Vatnsketillinn verður í textanum sem á eftir kemur
kallaður „tækið“.
ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
• Tækið má eingöngu tengja við jarðtengda
innstungu með rafspennu upp á 220–240 volt
50/60 Hz.
• EKKI skilja börn eftir án eftirlits nálægt tækinu.
• Börn og einstaklingar með skerta líkamlega,
skynjunarlega eða andlega getu eða sem skortir
reynslu og þekkingu geta notað tækið, ef þau
eru undir eftirliti eða fá leiðbeiningar um örugga
notkun tækisins og skilji þær áhættur sem í henni
felst.
• Staðsetja skal tækið á sléttum, þurrum fleti
innandyra og fjarri hitagjöfum.
• Ekki dýfa tækinu ofan í vatn eða svipaða vökva,
t.d. þegar verið er að þvo það.
• Ekki toga í rafmagnssnúruna til að taka tækið
úr sambandi við rafmagn þar sem það getur
skemmt snúruna; taktu í klóna þegar þú tekur
það úr sambandi. Ef einhverjar skemmdir eru á
rafmagnssnúrunni eða tækinu má alls ekki nota
það heldur skal láta gera við það á viðurkenndu
þjónustuverkstæði.
Ef tækið er notað í öðrum tilgangi en það er ætlað
fyrir, eða ef það er notað án þess að farið sé
eftir notkunarleiðbeiningunum þá er notandinn
ábyrgur fyrir afleiðingunum af því. Ábyrgðin og
skilaréttur falla úr gildi ef tækið skemmist vegna
rangrar notkunar.