26
27
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
HREINGERNING
Ytri hreingerning - Þurrkaðu af vatnskatlinum (eftir að hann hefur kólnað niður) með
mjúkum rökum klút og notaðu ef til vill mildan uppþvottalög, ekki skal nota sterk
hreinsiefni né kemísk efni.
Hreingerning á síu - Í stútnum er sía sem skal hreinsa með mjúkum rökum klút með
reglulegu millibili.
Kalkhreinsa tækið - Hreinsaðu kalk úr tækinu með kalkhreinsi viðeigandi fyrir
tækið sem þú getur keypt í matvörubúð. Að neðan finnurðu upplýsingar um tíðni
kalkhreinsunar byggða á reynslugildum.
- Vatn með litlu kalkinnihaldi: 3-4 mánuðir
- Vatn með miðlungsháu kalkinnihaldi: 4-6 vikur
- Vatn með háu kalkinnihaldi: 2-4 vikur
Kalkaðar afurðir falla ekki undir vöruábyrgð.
FYRIRBYGGJANDI
Þegar tækið er ekki í notkun eða slökkt er á því má snúa snúrunni undir botnplötunni.
FÖRGUN Á NOTAÐRI VÖRU
Samkvæmt lögum skal losa sig við rafmagns- og rafeindatæki á
endurvinnslustöðum og sérstakir hlutar skulu endurunnir. Rafmagns- og
rafeindatæki sem merkt eru með endurvinnslumerkjum verður að fara með á
endurvinnslustöðvar viðeigandi sveitarfélags.
TÆKNILÝSING
Gerð: CVK2152S
Spenna: 220–240V, 50/60 Hz, 1850–2200 W