Öryggi - ÍSLENSKA
65
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
VIÐVÖRUN!
Slökkvið á rafmagni og vatnsinntaki tækisins áður en hvers kyns viðhald er framkvæmt.
VIÐVÖRUN!
Við notkun getur verið heitt vatn í frárennslisdælunni. Fjarlægið aldrei dæluhlífina meðan þvottalota stendur
yfir, bíðið alltaf þar til tækið hefur lokið lotunni og allt vatn hefur verið tæmt.
VARÚÐ!
•
Við hreinsun þessa tækis skal ekki nota leysiefni, alkóhól, vörur sem innihalda maurasýru, svarfandi
hreinsiefni, glerhreinsa eða alhliða hreinsiefni Það gæti skemmt plastyfirborð og önnur yfirborð.
•
Verið með hanska þegar tækið er þrifið.
•
Hætta er á vatnsleka ef dæluhlífin er ekki sett aftur á réttan hátt eftir hreinsun frárennslisdælusíunnar.
Förgun
Fargið umbúðum á umhverfisvænan hátt. Með því setja umbúðir í endurvinnslu, samkvæmt reglum lands
og staðar er hægt að draga úr notkun hráefna og magni úrgangs í landfyllingum.
Þetta tæki er merkt í samræmi við Evróputilskipun 2012/19/ESB, rafmagns- og rafeindatækjaúrgangur
(WEEE). Táknið á tækinu eða á umbúðum þess gefur til kynna að ekki skuli meðhöndla það sem
heimilisúrgang. Í staðinn skal afhenda það til viðeigandi söfnunarstöðvar fyrir endurvinnslu rafmagns- og
rafeindatækjaúrgangs.
Með því að tryggja rétta förgun tækisins hjálpar þú við að koma í veg fyrir mögulega neikvæðar afleiðingar
fyrir umhverfið og heilsu manna, sem að öðrum kosti gætu orðið vegna óviðeigandi meðhöndlunar úrgangs
vegna þessa tækis. Til að fá nánari upplýsingar um endurvinnslu þessa tækis skaltu hafa samband við
viðkomandi bæjaryfirvöld sem sjá um sorphirðu, heimilissorpþjónustu eða verslunina þar sem þú keyptir
tækið.