IS
IS
76
Notkunarviðvaranir
•
Ekki skal taka í sundur eða endurhanna ísskápinn,
né skemma kælikerfið. Viðhald á raftækjum skal
ávallt vera í höndum fagaðila.
•
Hafi rafmagnssnúran skemmst skal framleiðandinn
skipta um hana, eða þá viðgerðardeild
framleiðandans eða viðeigandi viðurkenndur
fagmaður (skemmd rafmagnsleiðsla er hættuleg).
•
Farðu varlega þannig að þú klemmir ekki fingurna
milli ísskápshurðanna né á milli ísskápshurðar og
ísskáps. Lokaðu ísskápshurðinni varlega þannig að
engin matvæli velti um koll.
•
Ekki setja mat eða ílát í frystihólfið með blautum
höndum þegar ísskápurinn er í gangi, sérstaklega
ekki málma, til að komast hjá kali.
•
Fall- og köfnunarhætta! Ekki leyfa börnum að fara
inn í né klifra í ísskápnum, þar sem hætta er á að
þau kafni eða detti.
•
Ekki setja þunga hluti ofan á ísskápinn. Hætta er á
að þeir falli niður þegar hurðin er opnuð eða lokuð
og slíkt gæti valdið líkamsskaða.
•
Vinsamlegast aftengdu tækið frá innstungunni
ef rafmagnslaust verður eða áður en þú hreinsar
tækið. Bíddu í að minnsta kosti 5 mínútur áður en
þú tengir aftur ísskápinn við rafmagn, til að koma í
veg fyrir skemmdir á þjöppunni vegna endurtekinnar
gangsetningar.
Viðvaranir vegna staðsetningar
•
Ekki setja eldfim efni, sprengiefni, rokgjörn eða
mjög tærandi efni í ísskápinn (til að komast hjá
skemmdum á tækinu og eldhættu).