54
CIP2121S
IS
Þegar ekki skal nota tækið í lengri tíma skal taka klóna úr innstungunni.
Þegar spanhellan er notuð skal hún ekki vera staðsett ofan á neinu
málmyfirborði.
Ekki setja pappír, álpappír, fataefni eða neina aðra óviðeigandi
hluti á hitunarflöt spanhellunnar.
Ef tækið er skemmt skaltu hætta að nota það. Farðu með það til
þjónustuaðila eða smásalans og skiptu um.
Þegar þú notar spanhelluna, skaltu staðsetja hana á flatan og öruggan flöt með að
minnsta kosti 10 cm lausu rými á milli allra hliða þess og veggja ef fyrir hendi eru.
Ekki nota spanhelluna í þröngu rými. Til að umfram hiti geti dreifst skaltu sjá til þess að
loftræstiopin séu óstífluð.
Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að skipta henni út.
Notaðu sér hágæða innstungu sem hefur að lágmarki málgidi 10 A (öryggisvörn).
Ekki nota tækið samtengt við innstungu sem er sameiginleg öflugum tækjum eins og
loftræstibúnaður, rafmagnsofnar o.fl. Slíkt getur leitt til yfirálags innstungunnar.
Eki snerta hitunarflötinn með hvössum áhöldum. Slíkt getur leitt til sprungna og annarra
skemmda. Ef yfirborðið er sprungið skaltu slökkva á tækinu til að koma í veg fyrir rafstuð.
Ekki má setja málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar og lok á hitunarflötinn – þau geta
orðið heit.
Ekki nota spanhelluna nálægt hlutum við hátt hitastig, til dæmis gasofna eða grill.
Sjáðu til þess að loftræstiopin á tækinu séu laus við stíflur.
Hitunarflöturinn er áfram heitur í ákveðinn tíma eftir notkun tækisins (t.d. eftir að pottur/
pannan hefur verið fjarlægð). Ekki snerta hitunarflötinn.
Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar af fólki (þar með talið börn) með skerta líkamlega,
skynjunarlega eða andlega getu.eða skort á reynslu og vitneskju nema það hafi þá fengið
umsjón eða tilsögn varðandi notkun tækisins af einstaklingi sem ber þá ábyrgð á öryggi
þess.
Umsjón skal höfð með börnum til að þau leiki sér ekki að tækinu.
Börn frá 8 ára aldri og einstaklingar með skerta líkamlega, skynjunarlega eða andlega
getu eða sem skortir reynslu og þekkingu geta notað tækið, að því tilskyldu að þau séu
undir umsjón eða fái leiðbeiningar um örugga notkun tækisins og skilji þær áhættur sem í
henni felst. Börn skulu ekki leika sér með vöruna. Börn skulu ekki sinna þrifum og viðhaldi
umsjónarlaus.
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Tákn: Bannað
Skylda
Viðvörun Varúð