48
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
UMHVERFISVÆN FÖRGUN
Þú getur stuðlað að verndun umhverfisins!
Mundu vinsamlegast að fara eftir lögum og reglum
á hverjum stað: Farðu með ónýtan rafeindabúnað á
viðeigandi förgunarstað.
1.5 Rafmagnstenging
• Tækið gengur fyrir rafmagni og því er alltaf hætta á
rafhöggi. Þess vegna skal farið nákvæmlega eftir þessum
leiðbeiningum.
• Komdu aldrei klóna með rökum höndum.
• Togaðu alltaf beint í sjálfa rafmagnsklóna þegar taka á tækið úr sambandi
við rafmagn. Kipptu aldrei í leiðsluna, hún gæti skemmst af því.
• Komdu í veg fyrir að rafmagnssnúran bogni eða klemmist, að ekið sé yfir
hana eða hún komist í snertingu við hitagjafa.
• Eingöngu skal nota framlengingarsnúrur sem eru viðurkenndar miðað við
orkunotkun tækisins.
• Aldrei má dýfa tækinu ofan í vatn eða annan vökva.
• Notaðu tækið því aðeins að sama spenna sé á rafkerfinu og tilgreind er á
merkiplötu tækisins. Tækið getur skemmst sé það tengt við ranga spennu.
• Hafi rafmagnssnúra tækisins skemmst skal framleiðandinn, þjónustufulltrúi
hans eða annar viðurkenndur aðili skipta um hana til að koma í veg fyrir að
notandinn sé í hættu.
1.6 Sé tækið bilað
• Aldrei skal nota bilað tæki og aldrei má nota tæki
með gallaða rafmagnsleiðslu. Það getur verið hætta á
líkamsáverkum.
• Leitaðu til viðurkennds umboðsmanns eða annars
viðeigandi einstaklings til að gera við tækið. Nánari
upplýsingar má fá á www.elvita.se