150
IS
Skjár
8 Viðvörunarljós
Eftirskolefni
Ef gátljósið logar þýðir það að lítið er eftir af eftirskolefni uppþvottavélarinnar (bættu við
eftirskolefni).
Salt
Ef gátljósið logar þýðir það að lítið er eftir af salti uppþvottavélarinnar (bættu við salti).
9 Þvottakerfisgátljós
Kröftugt
Fyrir uppþvott með föstum matarleifum, t.d. óhreinum pottum, pönnum eða matarfötum.
ECO
Þetta er staðalkerfi fyrir venjulegan óhreinan uppþvott á borð við potta, diska, glös og lítið
óhreinar pönnur.
Flýtival
Styttra þvottakerfi fyrir lítið óhreinan uppþvott sem ekki þarf að þurrka.
90 mín
Fyrir venjulegan uppþvott sem þarf flýtiþvott.
10 Seinkun á þvotti
Sýnir tíma seinkaðrar ræsingar. (3 klst., 6 klst., 9 klst.)
Vatnsmýking
Vatnsmýking er stillt handvirkt miðað við hörku vatnsins.
Vatnsmýkingarefnið fjarlægir steinefni og sölt í vatninu sem annars myndu hafa neikvæð áhrif á virkni uppþvottavélarinnar.
Harka vatnsins eykst með magni steinefna í því.
Stilltu vatnsmýkinguna í ljósi hörku vatns á þínu svæði - á ekki við á Íslandi.
Leitaðu upplýsinga hjá bæjarfélaginu um hörku vatns á þínu svæði.
Að stilla saltnotkunina
Hægt er að stilla saltnotkun uppþvottavélarinnar eftir hörku vatnsins. Þannig er hægt að hámarka nýtingu saltsins og
aðhæfa hana.
1. Settu vélina í gang með því að þrýsta á ræsihnappinn (þá k iknar á gátljósum).
2. Haltu Start/hlé-hnappnum inni í minnst 5 sekúndur (innan 60 sekúndna eftir að vélin var sett í gang) til að ræsa stilliforrit
vatnsmýkingar.
3.
Þrýstu á Start/hlé-hnappinn til að velja stillingu sem hæfir eiginleikum vatnsins á þínu svæði. Í hvert sinn sem þú þrýstir
á Start/hlé-hnappinn breytast stillingarnar samkvæmt eftirfarandi: H1-> H2-> H3-> H4-> H5-> H6.
4. Þrýstu á ræsihnappinn til að fara úr úr stilliforritinu.
HARKA VATNS
0–5
6–11
12–17
18–22
23–34
35–55
°dH (þýsk mæling
á hörku)
°fH (frönsk
mæling á hörku)
°Clarke (ensk
mæling á hörku)
0–9
10–20
21–30
31–40
41–60
61–98
0–6
7–14
15–21
22–28
29–42
43–69
mmol/
0–0,94
1,0–2,0
2,1–3,0
3,1–4,0
4,1–6,0
6,1–9,8
Vatnsmýkingarstig
H1 Ljós fyrir Flýtival lýsir ->
H2 Ljós fyrir 90 mín lýsir ->
H3 Ljós fyrir Flýtival, 90 mín lýsir ->
H4 Ljós fyrir ECO lýsir ->
H5 Ljós fyrir ECO, Flýtival lýsir ->
H6 Ljós fyrir ECO, 90 mín lýsir ->
Saltnotkun (grömm/
þvottakerfi)
0
9
12
20
30
60
1° dH = 1,25° Clarke = 1,78° fH = 0,178 mmol/l
Staðalstilling: H3
Leitaðu upplýsinga hjá bæjarfélaginu um hörku vatns hjá þér.