
64
65
Athugasemd: Sé ekki farið eftir þessum leiðbeiningum, getur það komið mjög niður á hljóðdeyfingu og orsakað heyrnarskerðingu.
5. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
5:1 Hljóðdeyfigildi, SNR
Höfuðspöng (D:1)
Hjálmfesting (D:2)
Deyfigildi og styrkhlutfall heyrnarhlífanna eru prófað og vottað í samræmi við EN 352-4:2001, 2002, EN 352-8:2002, EN 352-1:2002
og EN 352-3:2002. Vottorðið er gefið út af Combitech AB, SE-73281 Arboga í Svíþjóð.
Skýringar með töflum um deyfigildi:
1. Þyngd
2. Tíðni (Hz)
3. Meðalgildi deyfingar (dB)
4. Staðalfrávik (dB)
5. Deyfing sem vænst er (dB)
Heyrnartólin ætti eingöngu að setja á og nota með eftirfarandi gerðum öryggishjálma skv. töflu H.
Útskýring á töflu H:
1. Framleiðandi hjálms
2. Tegund hjálms
3. Prófanaskýrsla
4. Festing
5. Stærðir: S=lítil, N=miðlungs, L=stór
5:2 Hljóðstyrkur þegar 3,5 mm hljóðinnstungan er notuð
Tónstyrkur heyrnartólanna með tónlist er mældur við hámarki 82 dB(A) jafngildan hljómstyrk.
5:3 Viðmiðunarstig (Mynd G)
Viðmiðunarstig er það magn hávaða (mældur sem A-veginn hljóðþrýstingur) utan heyrnarhlífa sem gefur 85 dB(A) innan þeirra.
Hávaðastigið ræðst af tegund hávaða. H er hávaði sem einkennist af hárri tíðni, M er hávaði sem ekki einkennist af neinni ákveðinni
tíðni og L er hávaði sem einkennist af lágri tíðni.
5:4 Rafhlöður
Hægt er að nota allar tegundir af AA 1,2-1,5V rafhlöðum (NiMH, NiCd, Alkaline, Lithium, Manganese o.s.frv.) en aðeins NiMH og NiCd
rafhlöður eru endurhlaðanlegar.
5:5 Rafhlöðuending
Búast má við að endingartími rafhlaðna sé breytilegur og ráðist af tegund þeirra og hitastigi við notkun. Lág hleðsla á rafhlöðu er
staðfest með raddskilaboðum: „low battery” (rafhlaða að tæmast). Heyrnartólin virka ekki eins vel og til er ætlast þegar lítið er orðið
eftir í rafhlöðunum.
2*AA Alkaline
Umhverfishljóð + FM-útvarp + Bluetooth (biðstaða) > 32 klst.
Umhverfishljóð + FM-útvarp + Bluetooth (virkt) > 23 klst.
5:6 Bluetooth
Útgáfa 2.1
A2DP 1.2
HSP 1.2
HFP 1.5
AVRCP 1.0
Heyrnartólin eru hönnuð fyrir Bluetooth-staðal V.2.1 (snið heyrnartóla og handfrjáls búnaðar + A2DP) og vottuð í samræmi við: EN
300 328 (útvarpsprófun), EN 301 489-1/-17 (EMC prófun), EN 60 950 (rafmagnsöryggi, tilskipun um lágspennu).
IS
Summary of Contents for Peltor WS Alert XP MRX21*WS5 Series
Page 1: ...Peltor WS Alert XP MRX21 WS5 The Sound Solution FP3710 rev a ...
Page 2: ... C 1 C 2 MRX21 WS5 H 115 dB A M 108 dB A L 95 dB A Criterion Levels G ...
Page 3: ...A A 1 A 20 A 13 A 12 A 11 A 9 A 10 A 2 A 3 A 5 A 19 A 18 A 17 A 16 A 14 A 15 A 4 A 7 A 6 A 8 ...
Page 7: ......
Page 85: ...78 ...
Page 191: ...184 ...