84
1.0 VÖRUNOTKUN
1.1 TILGANGUR: 3M DBI-SALA
LAD-SAF™ Sveigjanlega kapal öryggiskerfið
(mynd 1)
er hluti af persónulegu fallverndarkerfi.
Þegar kerfið er notað með Lad-Saf™ aftengjanlegri kapalslíf (seld sérstaklega) þá er Lad-Saf™ sveigjanlega kapal
öryggiskerfið hannað til þess að vernda starfsmann ef hann fellur á meðan hann er að klifra upp stiga á vinnupöllum eða
á sambærilegum mannvirkjum. LAD-SAF
™
sveigjanlegu kapal öryggiskerfin eru ætluð til uppsetningar á föstum stigum
eða stigalíkum klifurflötum sem eru hluti af vinnupöllum/mannvirkjum (t.d. byggingum með stöngum [viður, stál eða
steypa], mannheldum plönkum, loftnetum og turnum). Persónuhlífarnar sem valdar eru mynda nauðsynlegan hluta af
fallvarnarkerfinu. Ávallt skal nota líkamsöryggisbelti með festipunkti við brjóstkassa, í samræmi við ANSI Z359.11 eða
viðeigandi innlendan staðal. Við klifur skal notandi kerfisins nota klifurhjálm sem er í samræmi við innlendan staðal.
1.2 TAKMARKANIR:
LAD-SAF™ sveigjanlegu kapal öryggiskerfin eru ekki ætluð til uppsetningar á stigum sem eru
færanlegir. LAD-SAF™ sveigjanlegu kapal öryggiskerfin eru hönnuð til notkunar á vinnupöllum/mannvirkjum sem eru
almennt lóðrétt. Öryggiskerfið má ekki fara yfir hámarks 15° halla frá því lóðrétta. Eftirfarandi takmarkanir á notkun
verður að hafa í huga fyrir uppsetninga á LAD-SAF™ sveigjanlega kapal öryggiskerfinu.
A. TEGUND MANNVIRKIS/VINNUPALLA:
Mannvirkið/vinnupallarnir þar sem LAD-SAF™ sveigjanlega kapal
öryggiskerfið er sett upp á verða að þola högg sem verður á kerfinu ef fall á sér stað (sjá kafla 2.2).
B. KERFISGETA:
Fjöldi heimilaðra notenda á LAD-SAF™ sveigjanlega kapal öryggiskerfinu hverju sinni er mismunandi
eftir tegund kerfis og uppsetningum. Almennt séð þá er geta LAD-SAF™ sveigjanlega kapal öryggiskerfisins frá einum
upp í fjóra notendur í einu. Frekari upplýsingar um takmarkanir á getu er að finna í töflu 2. Kerfisgeta LAD-SAF™
sveigjanlega kapal öryggiskerfisins miðast við hámarks þyngd notanda sem samsvarar 310 pundum (140 kg), þar á
meðal verkfæri og fatnaður.
C. UMHVERFISHÆTTA:
Notkun á LAD-SAF™ sveigjanlega kapal öryggiskerfinu á svæðum með umhverfishættu kann
að gera kröfu um frekari varúðarráðstafanir til að draga úr möguleikanum á líkamstjóni notanda eða skemmdum á
búnaðinum (t.d. hár hiti vegna rafsuðu eða málmskurðar, ætandi efni, háspennuraflínur, sprengifimar eða eitraðar
lofttegundir, vélbúnaður á hreyfingu, skarpar brúnir).
1.3 EFTIRLIT:
Uppsetning á LAD-SAF™ sveigjanlega kapal öryggiskerfinu verður að vera undir eftirliti vottaðs aðila
1
.
1.4 ÞJÁLFUN:
LAD-SAF™ sveigjanlega kapal öryggiskerfið verður að vera sett upp af aðilum sem eru þjálfaðir í réttri notkun
kerfisins. Þessa handbók skal nota sem hluta af þjálfunarnámskeiði starfsmanna eins og krafist er af OSHA vinnueftirlitinu.
Það er á ábyrgð þeirra sem setja upp búnaðinn að tryggja að þeir þekki þessar leiðbeiningar og hafi fengið þjálfun í réttri
umhirðu og notkun þessa búnaðar.
1.5
Kynntu þér staðbundnar og innlendar kröfur sem lúta að þessum búnaði til að fá frekari upplýsingar um lóðrétt
öryggiskerfi og tengda íhluti. Kynntu þér einnig staðlana OSHA 1910.140, OSHA 1910.29, OSHA 1926.1053 og OSHA
1926.502.
2.0 ÍHUGUNAREFNI VIÐ NOTKUN KERFISINS
2.1 SAMHÆFI ÍHLUTA OG UNDIRKERFA:
Þessi búnaður er aðeins hannaður til notkunar með 3M Fall Protection-
samþykktum íhlutum og undirkerfum. Notkun ósamhæfra hluta og undirkerfa (t.d. öryggisbelti, dragreipi, slífar o.s.frv.)
getur stofnað í hættu samhæfi búnaðar og haft áhrif á öryggi og áreiðanleika heildarkerfisins. Ef þú hefur einhverjar
spurningar varðandi uppsetningu eða hæfi þessa búnaðar fyrir notkun þína skaltu hafa samband við 3M Fall Protection.
SAMHÆFI VIÐ KLIFURHJÁLPARKERFI:
3M Fall Protection LAD-SAF™ sveigjanlega kapal öryggiskerfið, þ.m.t. 3M Fall
Protection
LAD-SAF™
aftengjanlega kapalslífin eru kerfi sem eru hönnuð til notkunar með samþykktum 3M Fall Protection
klifurhjálparkerfum. Notkun allra annarra tegunda klifurhjálparkerfa getur verið ósamhæfð við
LAD-SAF™
sveigjanlega
kapal öryggiskerfið
og
LAD-SAF™
aftengjanlegu kapalslífina. Slíkt gæti skapað alvarlega hættu fyrir notandann. Ekki nota
klifurhjálparkerfi sem eru ekki af 3M Fall Protection fallvarnartegundinni án þess að ráðfæra þig fyrst við hæfan aðila og/
eða vottaðan aðila á vinnustað til þess að fá samþykki. Ef þú ert með frekari spurningar um samhæfi skaltu hafa samband
við 3M Technical Services-tækniþjónustuna.
;
Öryggiskröfur fyrir persónuleg fallvarnarkerfi, undirkerfi og íhluta ANSI Z359.1-2007 staðalsins krefjast þess að hæfur aðili og/eða
vottaður aðili „tryggi að kerfi sem eru sett saman úr íhlutum og undirkerfum sem eru framleidd af mismunandi framleiðendum mæti
kröfum þessa staðals.”
1 Vottaður aðili:
Aðili með viðurkennda gráðu eða faglegt vottorð og ítarlega þekkingu, þjálfun og reynslu í fallvörnum og með björgunarsveitareynslu sem getur
hannað, greint, metið ástand og skilgreint mismunandi fallvarnar- og björgunarkerfi eftir því sem krafist er af OSHA vinnueftirlitinu og öðrum stöðlum sem við eiga.
DISTRIBUTED BY CAI SAFETY SYSTEMS | Phone: (888) 246 6999 | Web: caisafety.com | Email: [email protected]