![MicroPower LION 9 Скачать руководство пользователя страница 83](http://html.mh-extra.com/html/micropower/lion-9/lion-9_user-manual_1788198083.webp)
ÖRYGGISKERFI LITÍUM-ION
RAFHLÖÐU
VARÚÐ
Hleðsla á litíum-ion rafhlöðum má aðeins fara
fram þegar viðurkennt öryggiskerfi fyrir rafhlöðu
og hleðslutæki fyrir rafhlöðu og eftirlit með
rafhlöðu og jafnvægi hólf er tengt og virkt.
Heildarkerfið er hér með kallað í þessari handbók
BMS kerfi (Battery Monitoring System). BMS
kerfið verður að:
1. Fylgjast með og vernda rafhlöðuna svo að
engar hættulegar aðstæður komi upp við
hleðslu eða notkun rafhlöðunnar.
2. Fylgjast með og koma jafnvægi á hvert hólf
rafhlöðunnar.
3. Aftengja rafhlöðuna frá hleðslutæki fyrir
rafhlöðu og aflhleðslu í samræmi við
viðeigandi innlenda staðla áður en hættulegar
aðstæður koma upp.
4. Tryggja að jafnvægi sé í hverju hólfi hvað
spennu og hleðslustig varðar.
5. Stjórnað sjálfvirkt án þess að handvirkt eftirlit
þurfi að eiga sér stað.
Hleðslutækin fyrir rafhlöðu sem um er fjallað í
þessari handbók eru ekki með innbyggt BMS
kerfi.
Öll notkun á hleðslutækjum fyrir rafhlöðu sem um
er fjallað í þessari handbók gera kröfu um að ytra
BMS kerfi sé tengt og virkt við alla hleðslu og
notkun rafhlöðunnar. BMS kerfið verður að vera
sjálfvirkt og samþykkt fyrir rafhlöðu og hleðslutæki
fyrir rafhlöðu.
Tryggðu að ekki sé farið fram yfir mörkum
rafhlöðunnar í samræmi við upplýsingablöð
hennar við hleðslu eða notkun. Athugaðu að
takmarkanir gilda um hvert hólf í rafhlöðunni.
Hleðsla litíum-ion rafhlaðna má ekki fara fram ef
hólfin eru með hitastig sem er lægra en 0 °C.
Litíum-ion hólfin sem skal hlaða skulu vera með
jafnt hitastig.
Rafhlöðuhólf mega ekki vera loftþétt lokuð í ytri
hlíf án þess að tryggð sé viðeigandi loftræsting.
VARÚÐ
Við uppsetningu eða vinnu á rafhlöðu, hleðslutæki
eða skautum rafhlöðu - passið ykkur á
skammhlaupi. Skammhlaup getur valdið
líkamstjóni og skemmt rafhlöðuna til frambúðar.
Notast skal við viðeigandi einangruð verkfæri við
alla vinnu á hleðslutækjum fyrir rafhlöðu,
rafhlöðum og BMS.
Ekki aftengja rafhlöðuna á meðan hleðsluferlið er
í gangi. Neistar geta komið upp og valdið
vetnissprengingu við hleðslu á blýrafhlöðum.
Ljósbogi getur komið upp og skemmt
tengipinnana. Ávallt skal stöðva hleðsluferlið áður
en rafhlaðan er aftengd.
Ekki geyma eldfimt efni nálægt hleðslutæki fyrir
rafhlöðu.
Fyrir tengingu skal athuga merkingu á rafhlöðu og
hleðslutæki fyrir rafhlöðu.
Ekki hlaða rafhlöður sem eru ekki
hleðslurafhlöður, skemmdar rafhlöður eða
tegundir rafhlaðna sem ekki eru ætlaðar fyrir
hleðslutækið.
RAFLOST
VIÐVÖRUN, hætta á raflosti
.
Háspenna að innan. Hleðslutæki
fyrir rafhlöðu inniheldur spennu við
stig sem getur valdið líkamstjóni.
VIÐVÖRUN, hætta á raflosti
. Há
útgangsspenna Ekki snerta
óeinangraðan hluta úttakstengis eða
óeinangrað rafhlöðusamband.
ÍSLENSKA
83
Содержание LION 9
Страница 2: ......
Страница 99: ...www micropower group com 日本語 99 ...
Страница 180: ...Figures 180 ...
Страница 181: ...Approvals Declaration of Conformity 181 ...
Страница 182: ...182 ...
Страница 183: ...183 ...
Страница 184: ......
Страница 185: ......