IS
IS
79
Staðsetning
• Fjarlægðu allar umbúðir (þar með talið neðripúða,
froðuhlífar og límband innan úr ísskápnum, rífðu
hlífðarfilmuna af hurðum og ísskápshúsinu, áður en þú notar
ísskápinn.
• Settu tækið á stað þar sem það kemst ekki í snertingu við
hitagjafa né beint sólarljós. Ekki setja tækið í rakt eða blautt
umhverfi (hætta er á ryði og rýrnun í einangrunargildi).
• Ekki úða né þvo ísskápinn, ekki setja tækið á rakan stað
þar sem það getur auðveldlega orðið fyrir vatnsskvettum,
sem gæti haft skaðleg áhrif á rafmagnseinangrun
ísskápsins.
• Settu tækið á vel loftræstan stað innanhúss á traust og
jafnt gólf. Snúðu fótum til vinstri eða hægri til að still hæðina
ef gólfið er ójafnt.
• Vertu viss um að nægilegt rými sé fyrir ofan tækið (að
lágmarki 30 cm) og á milli tækisins og vegg að baki þess
(að lágmarki 10 cm) til að tryggja að heitt loft dreifist
nægilega vel.
Að nota ís-/frystiskápinn
Undirbúningur fyrir uppsetningu:
Vertu viss um að ísskápurinn sé aftengdur frá innstungunni áður en þú setur hann upp eða stillir aukabúnað.
Farðu varlega þegar þú meðhöndlar ísskápinn þannig að þú getir verið viss um að hann falli ekki og valdi
líkamsskaða.
Stillifætur
Yfirlit yfir stillingu fóta
Stillingaraðferð:
a. Skrúfaðu fæturna réttsælis til að hækka
ísskápinn.
b. Skrúfaðu fæturna rangsælis til að lækka
ísskápinn.
c. Stilltu hægri og vinstri fót þar til ísskápurinn
stendur rétt.
Nota skal teikningu að ofan eingöngu til leiðbeiningar. Hin raunverulega uppsetning veltur á raunvörunni eða
vörulýsingu dreifingaraðilans.