
58
Öryggi - ÍSLENSKA
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
Almennt öryggi
VIÐVÖRUN!
•
Sumir hlutar tækisins geta geymt í sér hita í langan tíma. Bíðið eftir að hlutar sem eru útsettir fyrir hita kólni
niður áður en þeir eru snertir.
•
Ef yfirborðið er sprungið skal slökkva á tækinu til að hindra hættu á raflosti.
VARÚÐ!
Setjið ekkert á hurð tækisins þegar hún er opin. Setjið ekkert á skúffu tækisins þegar hún er opin. Það gæti
valdið ójafnvægi tækisins eða brotið hurðina eða skúffuna.
ATHUGIÐ!
Ef ekki skal nota tækið í einhvern tíma er ráðlegt að aftengja það frá rafmagni.
Öryggi við uppsetningu
VIÐVÖRUN!
•
Aðeins hæfur rafvirki sem fer eftir staðbundnum lögum og reglum má skipta um eða gera við
rafmagnstengingu þessa ofns.
•
Tryggið að tengistærðir ofnsins (styrkur öryggis, spenna og tíðni) samsvari rafmagnsveitunni. Ef þú ert í
vafa skaltu ráðfæra þig við viðurkenndan rafvirkja.
•
Rafmagnssnúra ofnsins verður að vera tengd við jarðtengda innstungu.
•
Rafmagnsbúnaður verður að vera alveg einangraður.
•
Ekki láta koma brot í rafmagnssnúruna.
•
Allar hlífar verða að vera tryggilega festar í stað þannig að ekki sé hægt að fjarlægja þær án þess að nota
sérverkfæri.
VARÚÐ!
Ekki halda á ofninum með hurðarhandfanginu. Hurðarhandfangið getur ekki borið þyngd ofnsins og getur
brotnað af.
Öryggi við notkun
VIÐVÖRUN!
Gangið úr skugga um að allar leifar umbúða hafi verið fjarlægðar úr eldunarrýminu.
VIÐVÖRUN!
•
Staðsetjið ofngrindina rétt á milli vírbrautanna til að tryggja að ofninn starfi á öruggan hátt.
•
Setjið ofngrindina inn í rétta stefnu. Það tryggir að heitur matur renni ekki út þegar grind eða bakki eru
tekin varlega út.
•
Hurð tækisins ætti að vera eins lítið opnuð og mögulegt er meðan eldað er.
•
Tækið verður mjög heitt við notkun. Snertið ekki hitöldin innan í tækinu.
•
Notið tækið í opnu umhverfi.