Öryggi - ÍSLENSKA
57
© 2021, Elon Group AB. All rights reserved.
ÖRYGGI
Lesið þessar leiðbeiningar vandlega áður tækið er sett upp og notað. Geymið leiðbeiningarnar nálægt tækinu til síðari
nota. Margskonar ábyrgðir munu falla úr gildi ef þessum leiðbeiningum er ekki fylgt.
Viðvaranir
VIÐVÖRUN!
Notaðar þegar hætta er á líkamstjóni.
VARÚÐ!
Notaðar þegar hætta er á því að varan verði fyrir tjóni.
ATHUGIÐ!
Almennar upplýsingar sem þú ættir að vita um.
Hjálpleg ráð sem þér kunna að þykja gagnleg.
Ætluð notkun
Þetta tæki er ætlað
• til notkunar á heimili,
• til að vera uppsett sem innbyggð eining og
• til að hita og elda ýmiskonar matvæli.
Þetta tæki er ekki ætlað
• til notkunar á stöðum þar sem sérstakar aðstæður eru viðvarandi, eins og að til staðar sé tærandi eða sprengifimt
andrúmsloft (ryk, gufa eða gas),
• til notkunar utandyra eða
• til herbergishitunar eða í svipuðum tilgangi.
Öryggi fyrir börn og fólk með fötlun
VIÐVÖRUN!
•
Látið börn ekki vera nærri tækinu meðan það er í notkun, sérstaklega þegar grillið er í gangi.
VIÐVÖRUN!
•
Hafið umbúðaefni eins og plastpoka, pólýstýren eða nagla þar sem börn ná ekki til þar sem þessir hlutir
geta verið hættulegir fyrir þau.
VIÐVÖRUN!
Látið eftirfarandi hópa aðeins nota tækið undir umsjón eða ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar um örugga
notkun þess. Þau verða að skilja hætturnar sem eru til staðar.
•
Börn. (Börn yngri en 8 átta ára verða að vera undir stöðugu eftirliti.)
•
Fólk með minnkaða líkamlega, skynjunarlega eða andlega getu.
•
Fólk sem skortir reynslu og þekkingu.
VIÐVÖRUN!
•
Leyfið börnum ekki að leika sér með tækið.
•
Leyfið börnum ekki að þrífa tækið án eftirlits.