142
IS
IS
VIÐVÖRUN!
Tryggðu að loftræstingin sé nægilega góð
Gakktu úr skugga um að spanhelluborðið sé vel loftræst og að ekkert loki fyrir loftinntak eða loftúttak. Til að koma í veg fyrir
slysasnertingu við heitan neðri hluta helluborðsins (eða rafstuð á meðan vinnu stendur) verður að setja upp tréplötu (og
festa með skrúfum) í fjarlægð sem er að lágmarki 50 mm frá neðsta hluta helluborðsins. Farðu eftir leiðbeiningunum hér fyrir
neðan.
Það eru loftræstigöt að utanverðu á öllum hliðum helluborðsins.
Gakktu úr skugga um að vinnuborðið loki ekki fyrir þessi göt þegar þú
kemur helluborðinu fyrir.
• Límið sem er notað til að festa efni úr plasti eða tré í eldhússkápum
verður að þola hitastig upp að 150˚C (rangt lím getur valdið því að
efnið losnar).
• Veggurinn á bakvið og nærliggjandi yfirborð verða því að þola
hitastig upp á 90˚C.
9.2 Gakktu úr skugga um eftirfarandi atriði fyrir
uppsetningu á helluborðinu:
• Að vinnuborðið sé ferkantað og lárétt (passaðu að engir burðarbitar nái inn í rýmið).
• Að vinnuborðið sé gert úr hitaþolnu og einangrandi efni.
• Að ofninn sé með innbyggða kæliviftu ef helluborðið er sett fyrir ofan hann.
• Að uppsetningin uppfylli allar kröfur í þessum notkunarleiðbeiningum og viðeigandi staðla og reglugerðir.
• Að hentugur einangrunarrofi, sem getur alveg rofið samband við raftengingu, sé settur upp varanlega og sé festur og
staðsettur samræmi við innlend lög og reglugerðir.
• Að einangrunarrofinn sé af viðurkenndri gerð og sé með að lágmarki 3 mm loftbil á milli tengipunkta á öllum rafskautum
(eða á öllum fasaleiðurum, ef innlend lög um uppsetningu rafmagni leyfa það frávik frá kröfum).
• Að einangrunarrofinn sé uppsettur þannig að gott aðgengi sé að honum fyrir þann sem notar helluborðið.
• Að þú hafir sambandið við byggingaryfirvöld á staðnum og skoðir innlend lög ef þú ert í einhverjum vafa með
uppsetninguna.
• Að þú notir hitaþolið efni sem er með yfirborði sem auðvelt er að þrífa (t.d. keramikflísar) á vegginn sem er í kringum
helluborðið.
Содержание CIH4660S
Страница 7: ...7 SE ...
Страница 31: ...31 NO ...
Страница 55: ...55 GB ...
Страница 79: ...79 DK ...
Страница 103: ...103 FI ...
Страница 127: ...127 IS ...