–
24
–
EN
NO
DE
NL
SV
DA
FI
IS
FR
Art. No. User Manual: 105050 – Revision A, 2022-01
IS
Til hamingju með valið á nýrri
TOPRO hárri göngugrind
Hver og ein TOPRO-vara er þróuð,
hönnuð og framleidd í Noregi. Varan er í
samræmi við reglugerð (EBE) 2017/745
um lækningatæki. Hún er prófuð og
viðurkennd í samræmi við EN ISO
11199-3:2005. Vinsamlegast athugaðu
vöruna við viðtöku hennar. Vinsamlegast
hafðu samband við hjálpartækjaverslun
eða söluaðila ef þú hefur einhverjar
fyrirspurnir. Ef þú ert í vandræðum með
að lesa þessa notendahandbók er rafræn
útgáfa tiltæk á
topromobility.com.
Fyrirhuguð notkun
TOPRO TROJA WALKER
2
er ætlað að
veita stuðning til notenda með skert
jafnvægisskyn og/eða göngugetu.
Hún er hönnuð til ýta áfram, en
ekki draga. Innfellda sætið gefur
notandanum tækifæri til að hvílast
ef þess er þörf. Göngugrindin hentar
fyrir fullorðna einstaklinga. Hæðar- og
þyngdartakmarkanir eiga við.
Frábendingar: Varan hentar ekki fyrir
einstaklinga með lítinn styrkleika í
örmum, mjög lélegt jafnvægisskyn
eða talsverða vitsmunalega fötlun.
Varan er hönnuð og viðurkennd fyrir
notkun innandyra á sléttu yfirborði.
Mælt er með þjálfun hjá fagaðila til
að kynnast háu göngugrindinni og
læra hvernig á að nota hana rétt.
0
Gráu númeruðu hringirnir í þessari notendahandbók
vísa til númeraðra myndrænna upplýsinga og
skýringarmynda á innri hlið kápu.
1
Kynntust TORPO-vörunni þinni
A
Stuðningur fyrir framhandleggi
B
Bremsustöng
C
Handfangsrör
D
Bremsukapall
E
Sætisstangir / Burðarhandfang
F
Sæti með ól fyrir búnað til að
leggja saman göngugrindina
G
Klemmulás (smella)
H
Láshjól fyrir handfang
I
Karfa
J
Hliðargrind
K
Hemlaklossar / Brúnarhlíf
L
Hallaaðgerð
M
Stuðningsól
N
Framleiðslumiði
2
Öryggi
!
Farðu varlega svo þú skaðir ekki
á þér fingurna þegar þú leggur
saman og opnar göngugrindina.
Gættu að því setja ekki fingurna á
þér í göt eða á milli fastra hluta.
Gættu að því að læsa hjólunum tryggilega
við hæðarstillingu á handföngum.
Gakktu úr skugga um að stöðuhemlar
á báðum hliðum séu í læstri stöðu
(A) þegar háa göngugrindin er
kyrrstæð eða hefur verið lagt.
Ekki nota háu göngugrindina
í stigum. Farðu varlega þegar
farið er yfir þröskuldi, o.s.frv.
Athugaðu bremsurnar fyrir
hverja notkun og hvort að háa
göngugrindin læsist í opinni stöðu.
Ekki nota búnaðinn til að flytja
þungan farm eða einstaklinga.
Vertu meðvitaður um að sumir hlutar
háu göngugrindarinnar geta verið heitir
eða kaldir þegar hún er óvarin gegn
mjög háu eða mjög lágu hitastigi.
Ekki breyta vörunni, þar sem
það gæti stefnt öryggi þínu í
hættu og ógilt ábyrgðina.
Gakktu úr skugga um að stöðuhemlar
á báðum hliðum séu í læstri stöðu
(A) áður en þú sest á sætið (C).
Til að varast hættuna á falli skaltu ekki
halla þér eða beygja til hliðanna eða yfir
bak háu göngugrindarinnar þegar þú situr
á henni. Ekki halla háu göngugrindinni
of mikið til hliðanna (D) til að draga úr
hættu á falli. Af sömu ástæðu mega pokar,
o.s.frv. aldrei hanga á handföngunum.
Til að veita réttan stuðning og öryggi,
skaltu ganga beinn og vera viss um að
háu göngugrindinni sé haldið eins nærri
líkamanum og hægt er (E). Gakktu milli
afturhjólanna (F), ekki aftan við þau (G).
Gættu að því að háa göngugrindin
getur runnið hraðar niður brekkur en
þinn gönguhraði leyfir sem getur leitt
til frekari hættu á að detta. Virkjaðu
bremsur til að stjórna hraðanum (B).
Gættu að því að vera ekki í skyrtu og
buxum sem flaksa til, þar sem þær gætu
fest sig í hjólunum sem gæti leitt til falls.
Vertu í traustum skóm til að forðast meiðsl.
Af öryggisástæðum er bannað að
sitja á háu göngugrindinni þegar
almenningssamgöngur eru notaðar.
Geymdu háu göngugrindina á öruggum
stað og vertu viss um að virkja (A)
stöðuhemla á báðum hliðum.
Ekki nota háu göngugrindina
á sleipu yfirborði.
Haltu háu göngugrindinni frá
eldi og heitum hlutum.
Ekki klifra á háu göngugrindinni.
TOPRO Troja Walker
2