
28
1. Standur
2. Gashylki
3. Innstreymisloki
4. Kveikihnappur
5. Rofi öryggislæsingar
6. Rofi fyrir samfellda notkun
7. Logastillihjól
Tækjaflokkur:
Bútangas, bútan-própan gasblanda án þrýstiminnkara
Gastegund:
Besta útkoma fæst með því að nota bútan-própan blöndu Rofill Super 100
(75% bútan, 25% própan).
Einnig má nota venjulegt kveikjaragas (bútan).
Nafnvarmagjöf/eyðsla:
0,64 kW / 50 g/klst.
Hitastig loga:
Hámark 1300°C
Notkun:
Eingöngu utandyra eða í vel loftræstum rýmum
HLUTAHEITI (mynd 1)
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR GERÐ MT-7702
Tækið er ekki með áfyllingu.
Öryggisleiðbeiningar
1. Notaðu tækið eingöngu eins og lýst er í leiðbeiningunum.
2. ATHUGAÐU: Aðgengilegir fletir geta orðið mjög heitir. Geymist þar sem börn né ekki til.
3. Tækið er ekki ætlað til notkunar fyrir fólk (þ.m.t. börn) sem hefur takmarkaða líkamlega eða andlega getu, skortir
reynslu og/eða þekkingu.
4. Notaðu aldrei tæki sem lekur, er skemmt eða virkar ekki eðlilega.
5. Ef tækið skemmist skal aðeins fela viðurkenndum sérfræðingum að gera við það með upprunavarahlutum.
6. Ekki breyta tækinu.
7. Ef gasleki kemur að tækinu (lykt af gasi, loftbólur við lekaprófun og/eða hvissandi hljóð) skal þegar í stað fara
með tækið út úr húsi eða á vel loftræst svæði þar sem ekkert getur kveikt eld og hægt er að staðsetja lekann
og gera við. Þegar kannað er hvort tækið er þétt skal gera það utanhúss. Leitaðu aldrei að leka með opinn loga.
Notaðu til þess gerðan úðabrúsa eða sápuvatn. Ef um er að ræða leka, skal fylgjast með tækinu þar til allt gas er
farið úr því. Hafðu samband við sérfræðinga ef nauðsyn krefur.
8. Aldrei má stinga göt á brennarann eða kasta honum á eld, jafnvel þótt ekkert gas sé á honum.
9. Fara skal vel með tækið. Forðastu högg eða áverka. Ekki láta tækið detta.
10. Beindu aldrei loga að andliti, líkama, fatnaði eða eldfimum efnum. Tækið skal nota í öruggri fjarlægð frá eldfimum
efnum. Tækinu skal haldið í öruggri fjarlægð frá eldfimum efnum (t.d. eldhúsrúllum).
11. Gakktu úr skugga um að loginn slokkni algjörlega eftir notkun.
12. Mundu að loginn getur náð lengra en virðist. Loginn er varla sýnilegur við viss birtuskilyrði.
13. Tækið má aðeins nota í vel loftræstu rými þar sem kröfur hvers lands eiga við:
• til að tryggja nægt loftstreymi fyrir brunann
• til að forðast að safnist upp mikið af óbrunnu gasi.
14. Aldrei skal láta gæðabrennarann standa í sólarljósi og forðast skal hitastig yfir 40°C.
15. Gæðabrennarinn skal látinn kólna að fullu áður en gengið er frá honum.
Öryggisleiðbeiningar við áfyllingu
• Gakktu úr skugga um að slökkt sé á brennaranum og að loginn sé alveg slökktur.
• Fylla skal á gæðabrennarann í vel loftræstu rými fjarri öllu sem getur kveikt eld. Reykingar eru bannaðar við
áfyllingu.
• Best útkoma fæst með því að nota bútan-própan blöndu Rofill Super 100 en hún fæst í verslunum sem eru með slíkar
vörur. Einnig má nota venjulegt kveikjaragas (bútan).
1008
Mikilvægt: Lestu vandlega leiðbeiningarnar til að kynna þér tækið. Varðveittu leiðbeiningarnar og láttu þær
ganga til næsta eiganda tækisins.
035126_Anleitung_Kern_180x127.indb 28
24.10.2018 12:54:19