Notkunarleiðbeiningar
Þráðlausa hitastillinn fyrir ofna er hægt að stýra með öllum intertechno tengjanlegum sendum.
Val um 2 mismunandi hitastig með allt að 4 sendum og einnig með intertechno Mastergate
gegnum snjallsíma eða spjaldtölvu!
Einnig stendur til boða vikustilling og orlofsstilling, þar sem er þó hægt að stilla hitastigið
handvirkt hvenær sem er.
Rafhlöður settar í: Mynd 1
Opnaðu rafhlöðuhólfið á undirhlið og leggðu 2 rafhlöður af gerð Mignon/AA með 1,5 Volt og
skulu rafskaut vísa rétt (neikvætt rafskaut við fjöður).
Við skipti á rafhlöðum geymast gögnin í um það bil 1 mínútu.
Uppsetning á ofnloka: Mynd 2
Áður en þú stillir sendirinn eða þráðlausa hitastillinn skaltu ljúka við uppsetningu þess á
ofninum.
Meðfylgjandi finnur þú millistykki fyrir algengustu ofnloka.
Lokar með skrúfugangi:
Til eru 2 algengir lokar, M30 x 1,5 og M28 x 1,5:
M30 x 1,5: Þráðlausi hitastillirinn skrúfast eingöngu með gráa hringnum beint á.
M28 x 1,5: Þráðlausi hitastillirinn er skrúfaður á með hvíta hringnum, en áður verður að setja
skífuna í.
Danfoss lokar: Mynd 3
Skoðaðu rásirnar í lokanum og ýttu millistykkinu alveg upp á.
ATHUGIÐ: Ef loki er af gerð RAV er nauðsynlegt að nota meðfylgjandi pinna!
Stilla dagsetningu og tíma:
Með valskífunni velurðu ár, mánuð og dag og staðfestir allt saman með því að nota OK takkann.
Klukkustundarvalið blikkar. Notaðu valskífuna til að stilla og ýttu á OK.
Um leið og búið er að stilla mínúturnar með valskífunni og staðfest er með OK, tengist hitastilli-
rinn við ofnlokann.
InS birtist á skjá! Þegar ýtt er á OK takkann birtist AdA.
Í framhaldinu ýtirðu á ný á OK til að tengja við ofnlokann!
(Við gallaða tengingu birtast villuskilaboð eins og F1, F2 eða F3!)
Stilla 2 hitastig (Nætur- og daghitastig):
Ýttu á takkann
þar til að dagshitastigið birtist á skjánum.
Veldu hitastigið og staðfestu með OK takkanum.
Þar næst skaltu velja næturhitastigið og ýta á OK.
Tenging intertechno senda:
Hægt er að tengja alla tengihæfa senda úr Smarthome vöruúrvali okkar. Hægt er að hafa 4 senda
á hvern hitastilli.
Ýttu á Menu-takkann þangað til Pro birtist á skjánum.
Snúðu valskífunni þar til rFs birtist á skjánum.
Með OK er nú hægt tengja sendinn með INN- eða ÚT- merki á innan við 30 sekúndur.
Endurtaktu fyrirkomulagið með OK fyrir frekari senda.
Við fjórðu tengingu birtist Ful á skjánum.
ITH-610
ISL
Notkunarleiðbeiningar
Með notkun Menu-takkans kemstu frá valmynd.
Með notkun Inn-merkis er hægt að velja dagshitastigið.
Með notkun Út-merkis er næturhitastigið stillt.
Hægt er að stilla hitastig þráðlaust hvenær sem er bæði í Manu (handvirkum) sem og í Auto
(sjálfvirkum) ham.
Athugið: Í orlofsham er þráðlaus stýring óvirk!
Eyða:Til að eyða öllum stillingum (sendum) skaltu leita í valmynd (Menu) að Unl og staðfesta
með OK og yfirgefa valmyndina með Menu-takkanum!
Vikustilling:
Ýttu á takkann Menu þar til að “Pro“ birtist á skjánum.
Eftir að þú ýtir á OK takkann getur þú notað valskífuna til að stilla einstaka daga, alla vikuna eða
valið á milli mánudags-föstudags eða laugardags-sunnudags. Staðfesta með OK takkanum.
Hægt er að velja 3 upphafs- og lokatíma þar sem valið er ákveðið hitastig. Velja upphafstíma með
valskífunni og staðfesta með OK takkanum. Velja lokatíma með valskífunni og staðfesta með OK
takkanum. Velja óskað hitastig með valskífunni og ýta á OK. Þú ferð sjálfvirkt í næstu tímastillingu
og fylgir ofangreindu fyrirkomulagi á ný.
Ef eingöngu er þörf á einni eða 2 upphafs/lokatímum þá er valin sami upphafs/lokatími.
OFF birtist á skjánum sem nú er hægt að staðfesta með OK.
Með því að ýta endurtekið á Menu takkann þar til „Auto“ birtist er hægt að setja í gang vikusti-
llinguna.
Valin tímasetning birtist á skjánum (12/13).
Hægt er að stilla hitastigið hvenær sem er með valskífunni eða þráðlaust þegar vikustilling er
notuð.
Orlofsstilling:
Hér er hægt að velja hitastig meðan á orlofi stendur (til dæmis frostvöktun)!
Ýttu endurtekið á takkann Menu þar til að birtist á skjánum.
Tímastilling blikkar. Stilltu tímann (klukkustundir) og dagsetningu sem og hitastig, allt fram að
áætlaðri endurkomu úr orlofi, með valskífunni og ýttu í framhaldinu á OK takkann.
Athugið: Í orlofsstilliingu er ekki hægt að nota þráðlausa stýringu!!!
Ef óskað er eftir að stilla við heimför á hærra hitastig með notkun snjallsímans, er mælt með að
stilla á lágmarkshitastig (frostvöktun) fyrir brottför, og nota síðan intertechno-Gateway (til dæmis
MasterGate) úr fjarska til að stilla á hærra hitastig!
Barnalæsing:
Ýttu á takkana
og MENU samtímis, þá birtist “LOC“ á
skjánum.
Við endurtekið val er barnalæsingin gerð óvirk á ný.
ITH-610
Summary of Contents for ITH-610
Page 2: ...1 2 3 M30 M28...
Page 61: ...R Menu Pro Menu OK Pro dAt AEr 1 5 C 3 toF 3 5 rES rFS UnL tEP 30 InS ITH 610 610...
Page 78: ......
Page 79: ......