8
Íslenska
MIKILVÆGT:
LESIÐ VANDLEGA OG GEYMIÐ
Fylgið vandlega öllum viðvörunum og
samsetningarleiðbeiningum.
Notið hengirúmið EKKI fyrr en uppsetningu er lokið
að fullu.
VARÚÐ!
• Hámarksburðarþol er 120 kg/265 lb.
• Settu hengirúmið upp þannig að lægsti punkturinn
sé ekki meira en 60 cm frá jörðu.
• Settu hengirúmið EKKI upp yfir malbiki, steypu,
þjappaðri mold eða öðru hörðu undirlagi. Fall á
hart undirlag getur valdið alvarlegum meiðslum.
• Athugaðu fyrir HVERJA NOTKUN hvort slit sjáist á
hengirúmi, köðlum eða festingum.
• Börn ættu ekki að nota hengirúmið án eftirlits
fullorðinna.
• Brýndu fyrir börnum að ganga aldrei eða leika sér
nálægt hengirúminu þegar það er á hreyfingu.
• EKKI stökkva úr hengirúminu á meðan það er á
hreyfingu.
• EKKI nota hengirúmið ef einhver hluti þess er
bilaður, rifinn eða týndur. Ekki skipta út hlutum í
hengirúminu. Athugaðu hjá IKEA hvort varahlutir
séu fáanlegir.
Umhirðuleiðbeiningar
Þrif: Vöruna þarf að handþvo með heitu vatni (40°C).
Forðist að bleyta málmkrókana. Setjið hengirúmið
og böndin í stóra fötu eða ílát sem fyllt er með heitu
vatni. Setjið milt hreinsiefni út í vatnið og notið mjúkan
bursta til að nudda úr bletti. Skolið vel. Látið þorna á
flötu undirlagi.
Geymsla: Þegar hengirúmið er ekki í reglulegri
notkun ætti að geyma það á svölum og þurrum stað
innandyra. Þvoið og þurrkið hengirúmið vandlega
áður en það er sett í geymslu.
Viðbótaviðvaranir/leiðbeiningar
Viðbótaviðvaranir/leiðbeiningar fyrir notkun á standi
fyrir hengirúm
Settu standinn saman og festu HAMNÖN hengirúmið
við hann eins og samsetningaleiðbeiningarnar segja
til um.
VARÚÐ!
• Komið samansettu statífinu fyrir á flötu og jöfnu
yfirborði sem er í öruggri fjarlægð frá öðrum
hlutum og hindrunum.
• Farið reglulega yfir festingar og herðið þær eftir
þörfum.
• Rólið EKKI of harkalega í hengirúminu þar sem það
getur gert það óstöðugt.
• Notið hengirúmið EKKI ef einhverjir hlutar þess eru
týndir eða hafa losnað. Notið EKKI utanaðkomandi
varahluti. Varahluti má nálgast í IKEA versluninni.
Summary of Contents for HAMNON
Page 1: ...HAMN N Design Hanna Klarqvist...
Page 23: ...23 120 265 60 40 C HAMN N...
Page 25: ...25 120 kg 60 cm 40 C HAMN N...
Page 26: ...26 120 265 60 40 C 104 F...
Page 27: ...27 Y 120 60 IKEA 40 C HAMN N IKEA...
Page 31: ...31 120 265 60cm 40 C 104 F HAMN N...
Page 32: ...32 120 60 IKEA 40 C HAMN N IKEA...
Page 33: ...33 120kg 265lb 60cm IKEA 40 C 104 F HAMN N IKEA...
Page 34: ...34 120kg 265lb 60cm 40 104 F HAMN N...
Page 37: ...37 265 120 60 40 104 HAMN N...
Page 38: ...38 120 265 60 40 104 HAMN N...