IS
181
B1279-001 © 02-2016
966.996.00.0 (00)
Hæfniskröfur til notenda
Fái notendur ekki viðeigandi þjálfun eru þeir ekki færir um að
greina eða meta þær hættur sem stafað geta af þrýstitækinu.
Þetta getur leitt til þess að notendur valdi sjálfum sér eða
öðrum alvarlegum áverkum.
• Eingöngu fagmenn á sviði röralagna mega nota þrýstitækið
• Notendur verða að þekkja gildandi öryggisreglur í hverju
landi og fara eftir þeim
• Áður en unnið er með tækið í fyrsta skipti verður notandinn
að fá tilsögn í notkun þess hjá fagmanni eða sækja
viðeigandi námskeið
Fara skal eftir leiðbeiningum og ábendingum
Hætta er á slysum vegna raflosts og bruna eða alvarlegum
slysum ef ekki er farið eftir öryggisleiðbeiningunum og
ábendingunum.
• Lesið eftirfarandi skjöl vandlega áður en búnaðurinn er
tekinn í notkun:
- meðfylgjandi skjal með heitinu "Mikilvæg öryggisatriði fyrir
rafmagnsverkfæri"
- notendahandbók viðkomandi þrýstihluta
• Fylgið öryggisleiðbeiningum fyrir þau hreinsi- og smurefni
sem notuð eru
• Geymið allar öryggisleiðbeiningar og ábendingar til síðari
nota
• Hirða skal vel um viðvörunarlímmiða, öryggisleiðbeiningar
og upplýsingaplötuna á þrýstitækinu og skipta um þessi
atriði ef þau verða ólæsileg eða glatast