![3M MRX21A2WS6 Manual Download Page 95](http://html.mh-extra.com/html/3m/mrx21a2ws6/mrx21a2ws6_manual_442772095.webp)
87
IS
VARÚÐ
Dragðu úr hættum á borð við eldsvoða, sprengingu og
bruna sem leitt gætu til slysa, minniháttar eða í
meðallagi, eða skemmdum á eignum með því að:
a. Nota eingöngu 3M™ PELTOR™ USB hleðslutæki FR09 og
3M™ PELTOR™ USB millistykki FR08 með 3M™ PELTOR™
LR6NM hleðslurafhlöðum.
b. Ekki má hlaða rafhlöðuna ef umhverfishitastig er hærra en
45°C.
VARÚÐ
•
Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
•
Notaðu ávallt sértilgreinda 3M varahluti. Sé notast við aðra
varahluti en upprunalega gæti það dregið úr verndinni sem
varan á að veita.
ATHUGASEMD:
•
Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og flugvélum,
og skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum. Erfitt er að
segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun er
veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Ýmislegt
hefur áhrif á gagnsemi heyrnarhlífanna, til dæmis hvernig
þær eru settar upp, felldar að og notaðar, hvernig þeim er
haldið við, auk ýmissa annarra þátta. Kynntu þér betur
heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á vefsíðunni
www.3M.com.
•
Heyrnartólin eru búin styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi ætti
að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita ráða
hjá framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á um rafhlöðu.
•
Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir öryggishljóðtæki. Notandi
ætti að kynna sér rétta meðferð fyrir notkun. Ef hljóð er bjagað
eða vart verður við bilun ætti notandi að leita ráða
framleiðanda.
•
Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir hljóðtæki. Notandi ætti
að kynna sér rétta notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð
er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
lausna í handbók framleiðanda.
•
Heyrnarhlífarnar takmarka hljóðmerki við afþreyingarhlustun
við 82 dB(A) við eyra.
•
Hitastig við notkun:
-20°C til 55°C
•
Hitastig við geymslu:
-20°C til 55°C
VOTTANIR
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að útvarpsmóttakarinn
og Bluetooth
®
uppfyllir samræmiskröfur í Tilskipun 2014/53/
ESB og öðrum viðeigandi tilskipunum til þess að standast
kröfur um CE-merkingu. 3M Svenska AB lýsir því einnig yfir
að PPE-gerðar heyrnartólin séu í samræmi við reglugerð
(ESB) 2016/425 eða ESB-tilskipun 89/686/EES.
Hægt er að fá upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að
sækja samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/peltor/
doc. Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir
gilda um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu
vinsamlegast hlutanúmer þitt. Þú finnur hlutanúmer
eyrnahlífanna neðst á annarri skálinni. Dæmi um það má
sjá á myndinni hér að neðan.
PPE-búnaðurinn er endurskoðaður árlega af SGS Fimko
Ltd., Takomotie 8, FI-00380 Helsinki, Finnlandi, vottunarstofu
nr. 0598, og gerðarvottaður af PZT GmbH, vottunarstofu
nr. 1974, Bismarckstrasse 264 B, 26389 Wilhelmshaven,
Þýskalandi. Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við
EN 352-1:2002 / EN 352-3:2002, EN 352-4:2001/A1:2005,
EN 352-6:2002, EN 352-8:2008 eða EN 352-1:2020,
EN 352-3:2020, EN 352-4:2020, EN 352-6:2020 og
EN 352-8:2020. Viðeigandi útgáfu má finna í
samræmisyfirlýsingunni.
Hægt er að fá send afrit af samræmisyfirlýsingu og
viðbótarupplýsingum sem krafist er í tilskipununum með
því að hafa samband við 3M í því landi sem varan var
keypt. Upplýsingar um tengiliði má finna aftast í þessum
notendaleiðbeiningum.
Varan inniheldur bæði rafeinda- og rafmagnsbúnað og
því má ekki farga henni með venjulegu sorpi. Kynntu þér
vinsamlegast reglur á hverjum stað um förgun rafeinda- og
rafmagnsbúnaðar.
HLJÓÐDEYFING Í RANNSÓKNARSTOFU
Útskýringar á töflum yfir deyfigildi:
EN 352-1/EN 352-3/EN 352-4
3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli allar
heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir benda til þess að hjá
mörgum notendum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna vegna frávika við
að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig, færni viðkomandi
og hvatningu til þess. Kynntu þér gildandi reglur um
leiðbeiningar um aðlögun hljóðdeyfingargilda. Séu viðeigandi
reglugerðir ekki til staðar er mælt með því að draga úr
suðhlutfallinu (SNR) til að auðvelda mat á dæmigerðri vernd.
A:1
Tíðni (Hz)
A:2
Meðal hljóðdeyfing (dB)
A:3
Staðalfrávik (dB)
A:4
Ætlað verndargildi, APV (dB)
A:5
H = Mat á heyrnarvernd vegna hátíðnihljóða (ƒ ≥ 2.000 Hz).
M = Mat á heyrnarvernd vegna millitíðnihljóða
(500 Hz < ƒ < 2.000 Hz).
L = Mat á heyrnarvernd vegna lágtíðnihljóða (ƒ ≤ 500 Hz).
A:6
Viðmiðunarstig
H = Viðmiðsstyrkur fyrir hátíðnihljóð
M = Viðmiðsstyrkur fyrir millitíðnihljóð
L = Viðmiðsstyrkur fyrir lágtíðnihljóð
** 3M™ PELTOR™ WS™ ALERT™ XPI Headset